03.05—25.05.2019

Sýningar

Katrina Jane Perry, Kimi Tayler, Kirill Lorech, María Hrönn Gunnarsdóttir, Margrét Helga Sesseljudóttir, Pier Yves Larouche, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Sihan Yang

Mjúk lending: Útskriftarsýning MA Myndlist Listaháskóli Íslands

Í Mjúk lending kvíslast átta sjálfstæðar nálganir, sameinast og stundum skerast þær. Ákveðin orð flæða gegnum og opna og bjóða okkur á staði til að mætast á: ást, áfall, farvegur, fáránleiki, forvitni, hollusta, heimilislegt, á milli heima, millibil, myrkur, orka, ósamræmi, raunveruleiki, samkennd, samruni, sjálfsmynd, skjól, staður, svefn, tengsl og tilburðir til að „sjá“. Þessi orð eru virk í sýningunni, ná til margra sviða mannlegrar reynslu og viðurkenna tilvist öflugs innra ástands og tilfinninga. Kjarni þess sem listamennirnir kanna í verkum sínum er í raun hvað það þýðir að vera manneskja í heimi gegnsýrðum af félagslegum, menningarlegum og vistfræðilegum vandamálum.


Sýningarstjóri

Becky Forsythe