Nýlistasafnið er listamannarekið safn og sýningarrými með það að markmiði að varðveita og sýna samtímalist og vera vettvangur fyrir tilraunir og alþjóðlega umræðu um myndlist.

Nýlistasafnið eða Nýló eins og safnið er nefnt í daglegu tali, var stofnað árið 1978 af hópi listamanna og er því eitt elsta safn og sýningarrými í Evrópu í umsjón listamanna. Nýlistasafnið hefur verið einn helsti vettvangur fyrir samtímalist á Íslandi og á einstakt safn verka eftir íslenska og alþjóðlega listamenn frá sjötta áratug síðustu aldar og fram til dagsins í dag.

Sýningarhald Nýlistasafnsins hófst í byrjun níunda áratugarins og hafa margar sýningar markað tímamörk í íslenskri listasögu. Á hverju ári stendur safnið fyrir öflugri sýningardagskrá auk þess að vera vettvangur ýmissa viðburða, safnfræðslu og rannsókna, í náinni samvinnu við listamenn, sýningarstjóra, fræðimenn og almenning.

Í safneign Nýlistasafnsins eru yfir 2.200 verk sem gefin hafa verið af listamönnum, fulltrúum, söfnurum og einstaklingum sem tengjast safninu. Í dag endurspeglar safneign Nýló helstu hreyfingar í samtímalistinni og áhuga safnsins á því að spyrja og svara spurningum líðandi stundar.