Viltu vera vinur eða verndari Nýló? Vinir og verndarar Nýló er hópur fólks og fyrirtæki sem styðja sérstaklega við metnaðarfulla sýningar­starfsemi og viðburðadagskrá í einu elsta listamannarekna safni og sýningarstað Íslands. Með því að sýna stuðning þinn í verki nýtist framlag þitt til að styrkja lifandi umhverfi samtímalistar og efla kjarnastarfsemi Nýló enn frekar. Sem vinur eða verndari styður þú beint við frumsköpun og grasrót íslenskrar myndlistar. Hafir þu áhuga hvetjum við þig til að koma í heimsókn eða hafa samband í síma 551 4350 eða með því að senda bréf á nylo(hjá)nylo.is. Athygli er vakin á því að styrktarframlög til Nýlistasafnsins eru frádráttarhæf (sjá nánar hér að neðan).

Ár hvert fær Nýló framúrskarandi listamann til að skapa verk í 40 eintökum, sem vinir Nýló fá í þakklætisskyni frá safninu. Fyrsti vinalistamaður safnsins var Hreinn Friðfinnsson árið 2016. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Unndór Egill Jónsson, Arna Óttarsdóttir og Guðjón Ketilsson hafa öll verið vinalistamenn í kjölfarið. Listamaður ársins 2022 er Melanie Ubaldo.

Vinalistamenn Nýló:

2022 Melanie Ubaldo

2021 Guðjón Ketilsson

2019/2020 Arna Óttarsdóttir

2018 Unndór Egill Jónsson

2017 Anna Júlía Friðbjörnsdóttir

2016 Hreinn Friðfinnsson

Vinur
Tilvalið fyrir safnara og hvern þann sem lætur sig listir og menningu varða.

Vinir fá nýjasta listaverkið úr vinaröð Nýló, áritað og númerað 

  • Einkaleiðsögn fyrir vini og verndara á allar sýningar safnsins með léttum veitingum.
  • Boð á einkaviðburð í Nýló þar sem við skálum saman þegar nýr vinalistamaður næsta árs hefur verið valinn og vinaverk Nýló er afhjúpað.
  • Möguleiki á að eignast fyrri verk úr vinaröð Nýló á eldra vinaverði kr 80.000.-
    kr. 80.000 á ári

Verndari

 Tilvalið fyrir gjafmilda sem vilja deila upplifun sinni í Nýló með öðrum, sérstaklega fyrirtæki eða félagasamtök. 

Verndarar fá nýjasta listaverkið úr vinaröð Nýló, áritað og númerað

  • Verndari getur óskað eftir einkaleiðsögn fyrir starfsmenn fyrirtækis á sýningar Nýlistasafnisins.
    undefined

  • Möguleiki á að eignast fyrri verk úr vinaröð Nýló á eldra vinaverði kr 60.000.-
    Lágmark kr 250.000 á ári

Nýlistasafnið hefur verið skráð á almannaheillaskrá Skattsins og með því skapast tækifæri fyrir þau sem styrkja safnið, fyrirtæki og einkaaðila, að telja fram styrk til lækkunar á útsvars- og tekjuskattstofni. Frádráttur einstaklinga getur verið á bilinu 10-350 þúsund kr á almanaksári, hjóna og sambúðarfólk allt að 700 þúsund og atvinnurekstraraðilar geta dregið 1,5 % frá skattskyldum tekjum. Móttakendur gjafa og framlaga, sem skráðir eru á sérstaka almannaheillaskrá, þurfa að gefa út kvittun við móttöku þar sem m.a. kemur fram nafn og kennitala gefanda og fjárhæð framlags.

Nýlistasafnið er í samstarfi við ríki og Reykjavíkurborg til að standa straum af kostnaði vegna grunnreksturs safnsins. Sýningarhald og viðburðadagskrá er haldið til með framlögum fulltrúa safnsins, styrkumsóknum í ýmsa sjóði, frjálsum framlögum og vinum Nýló.