Opnun: Viðveran

Sýningin Viðveran opnar í Nýlistasafninu þann 29. október kl. 18:00!
Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur eru sýningarstjórar og er sýningin loka hnikkur á dagskrá sem þau hafa unnið í tengslum við rannsókn sína á Gjörninga Arkífi safnins.
Biðstofan, Móttakan, Viðveran
Fjörutíu ára gamall draumur snýr aftur sem draugur, efnahagshrunið er rifjað upp frá sjónarhóli tólf ára barns, halastjarna ferðast um sólkerfið á meðan sýningunni stendur og á opnuninni hljótum við minjagrip um atburð sem er varla hafinn. Í Viðverunni koma fram fjórir listamenn sem vinna með gjörninginn á ólíkan hátt. Verkin teygja sig milli fortíðar, nútíðar og framtíðar, upp í himinhvolf og inn í undirmeðvitundina þar sem liðnir atburðir eru kallaðir fram á ný og verða að ófyrirséðum augnablikum í samspili listamanna og áhorfenda.
Á sýningunni halda Ráðhildur Ingadóttir, Margrét Dúadóttir Landmark, Skúli Thayer og Halldór Ásgeirsson atburði, eventa, gjörninga, viðburði, performansa eða uppákomur sem virkjast á ákveðnum tímapunktum yfir sýningartímabilið.
Gjörningadagskrá á sýningartímabilinu:
Halldór Ásgeirsson – 29. október
Skúli Thayer – 29. október
Margrét Dúadóttir – 20. nóvember
Ráðhildur Ingadóttir – 27. nóvember
Biðstofan, Móttakan, Viðveran
Biðstofan er opið rannsóknarrými í fordyri Nýló þar sem gjörningaarkíf Nýlistasafnsins er aðgengilegt í heild sinni. Þar má finna gjörninga sem þegar hafa verið skráðir og aðrir sem enduðu þar á óskiljanlegan hátt. Mörg gögnin eru viðkvæm og sum þeirra eru föst á spólum sem eftir á að stafvæða. Gestum er boðið að kíkja í arkífkassana með aðstoð starfsfólks, uppgötva gömul og ný verk og bæta við upplýsingum um verk sem þau þekkja.
Biðstofan, Móttakan, Viðveran
Listamenn eru hvattir til að bæta í arkífið á meðan á sýningartímanum stendur og mæta með gögn um gjörninga. Gögnin geta verið af ýmsum toga, til dæmis ljósmyndir, upptökur, handrit, sýningarskrár eða blaðaklippur, en einnig hlutir, búningar og annað tengt gjörningum.
Vegna stærri gjafa þarf að senda póst á jenny(hjá)nylo.is