Opnun: Svaf allan daginn

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Svaf allan daginn eftir Ívar Glóa Gunnarsson Breiðfjörð í Nýlistasafninu, laugardaginn 5. September kl. 17:00 – 19:00!
Á sýningunni Svaf allan daginn hefur Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð unnið metnaðarfulla innsetningu í allt sýningarými Nýlistasafnsins. Verkin eiga það sameiginlegt að fást við hugmyndina um mælikvarða en þau tengjast bæði innbyrðis og eru í hlutfallslegu samhengi við rými Marshallhússins. Ívar Glói býður gestum að staldra við og velta fyrir sér þeim mælikvörðum sem móta allt umhverfi okkar og við tökum sem sjálfgefnum en eru í raun tilbúningur til að henda reiður á óreiðukenndan heim; vita hvað snýr upp og niður, hvað sé lítið og hvað sé stórt. Raunveruleikinn er hins vegar sá að allt er afstætt, myndlistin þar með talin.
Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð (f. 1992) stundaði nám við Listaháskóla Íslands (BA) og lauk framhaldsnámi við Luca School of Arts í Brussel árið 2023. Verk hans hafa verið sýnd í Art au Centre í Liège (BE), Cas-co í Leuven (BE) og víða hér á landi – meðal annars í Gerðarsafni, Harbinger og á Sequences listahátíðinni. Árið 2023 hlaut Ívar Glói hin Belgísku Cas-Co Bac verðlaun. Hann býr í Reykjavík.
Sýningarstjóri er Heiðar Kári Rannversson