13.06.2024

17:00—19:00

Viðburðir

Opnun: Rás

Verið öll hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Rás fimtudaginn 13. júní kl. 17-19.

Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík 2024.

Listamenn: Aki Onda,  Ásta Fanney Sigurðardóttir, Hildur Elísa Jónsdóttir, Logi Leó Gunnarsson

Sýningarstjórar:

Sunna Ástþórsdóttir

Þorsteinn Eyfjörð

RÁS er hugsuð sem mögulegt svar við þeirri mótsögn sem felst í því að „sýna hljóð“; ómöguleikinn sem birtist okkur verður að leik eða þraut: Hvernig er hægt að skapa sýningu sem höfðar fyrst og fremst til eyrnanna? Í spurningunni er ákveðinn útúrsnúningur falinn. Hljóði fylgir jafnan sjónræn umgjörð og skynfærin spila yfirleitt saman á einhvern hátt. Við hljóð koma óhjákvæmilega myndir upp í hugann og öfugt. Spurningunni fylgir einföld æfing sem skilgreinir ramma sýningarinnar og felur í sér að hljóð er skoðað út frá sínum efnislegu og eðlislægu eiginleikum. Þegar hljóð fær að vera hljóð í sjálfu sér verða tengingar þess við minningar okkar og aðra staði en þá sem við erum stödd á, skýrari og áþreifanlegri. Við tökum að færast um stað, ferðast um hljóðheiminn, finna fyrir hljóðinu.

Verkin á sýningunni kvikna öll út frá hljóði en þaðan stefna þau í ólíka átt. Hljóði er hleypt lausu út í loftið, svífandi skúlptúr sem umbreytist á hlaupum. Lestur í hljóði kallar fram minningar sem aftur kallar fram hljóð sem lifa innra með okkur. Við heyrum hljóðfæraleikara anda sig í gegnum nótur verks. Einn léttur þytur, endurtekinn í sífellu, gefur hugmynd um rými, tíma og áttaskyn. Hljóðupptökur frá heilu ári, frá hverjum einasta degi ársins 2012 kalla fram tengsl hljóðs við minningar, tímann og vangaveltur um virkar aðferðir hlustunar. Það að heyra eitthvað útundan sér og virkilega hlusta eftir einhverju er ekki eitt og það sama – þegar við sperrum eyrun er aldrei þögn.

Mynd: stilla úr verkinu án titils. 2024, Logi Leó Gunnarsson