01.10.2026

20:30—22:00

Viðburðir

Lestrarfélag Nýló: dr.Ynda Eldborg og Viktoría Guðnadóttir

Lestrarfélag Nýlistasafnsins

01.10.2026 20:30 – 22:00

Umsjón og val lesefnis: dr.Ynda Eldborg og Viktoría Guðnadóttir

Varða: Karl Ómarsson

Lesefni: Frieze: The Art of Destruction um bókina (e. about) The Destruction of Art eftir Dario Gabon ásamt ítarefni. 

Nú stendur yfir sýningin Nína, okkar kærasta Nína í Listasafni Reykjanesbæjar. Þær dr. Ynda Eldborg og Viktoría Guðnadóttir hafa lagst í miklar rannsóknir á ferli listakonunnar út frá hinsegin sjónarhorni. Á sýningunni eru glæsileg verk frá farsælum ferli en þar eru líka heimildir um fjandsamlegt viðmót sem hún mætti á Íslandi sem náði hámarki þegar verkið hennar Litla hafmeyjan var sprengt í skjóli nætur á nýársnótt árið 1960 og gjöreyðilagt. 

Í bók Gambon er ítarleg umfjöllun um árásir á listaverk í gegnum listasöguna sem við ætlum að ígrunda með lestri texta um bókina og heimildum sem Ynda og Viktoría hafa safnað saman um slíka árás á verk Nínu Sæmundsson. Einnig verður lesinn stuttur texti sem birtist í dagblöðum þar sem ókunnur höfundur lýsti aðkomu sinni að sprengingunni og reyndi að gefa skýringar - án þess að koma fram undir nafni.  

Hægt er að nálgast textann með því að senda póst á odda[hjá]nylo.is