13.07—08.08.2020
Bjarki Bragason, Claudia Hausfeld, G.Erla, Hildur Hákonardóttir, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Kolbrún Ýr Einarsdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Rúna Þorkelsdóttir
Ný aðföng

Verið velkomin á safneignarsýningu sumarsins í Nýlistasafninu, Ný aðföng. Á sýningunni má sjá úrval verka sem gefin hafa verið í safneign síðustu þrjú ár. Elstu verkin á sýningunni eru frá sjöunda áratug síðustu aldar og þau nýjustu eru aðeins nokkurra ára gömul. Á sýningunni má finna verk unnin í ýmsa miðla, þar á meðal textílverk, skúlptúra, ljósmyndir og innsetningar.
Sýningin stendur frá 14. júlí til 9. ágúst. Það verður engin hefðbundin opnun en listamannaspjall verður haldið þann 30. júlí og verður það kynnt betur síðar.















Sýningarstjóri
Birkir Karlsson