19.08—01.10.2023

Sýningar

Anna Reutinger, Brák Jónsdóttir, Hugo Llanes, Sigurður Ámundason

Gottfariðillailla

Sýningin leiðir saman verk listamannanna Anna Reutinger, Brákar Jónsdóttur, Hugo Llanes og Sigurðar Ámundasonar, sem hér sýna saman í fyrsta sinn. Gottfariðillailla sprettur upp úr þéttu samstarfi og tekur form sem einhvers konar samkomustaður, upphaf eða endastöð einbeitts en örlítið óreiðukennds samtals þar sem mismunandi raddir fléttast saman og hugmyndir mótast í leiðinni. Sýningin tekur sér (ó)þægilega stöðu inni í maga dýrsins mikla og dregur fram skáldaðar minningar, náttúru, menningu, útdauða, sefandi sjálfshyggju — og skál fyrir heimi án okkar! 

Ágrip

Verk Anna Reutinger seytla í gegnum trefjar einsemdarinnar og blanda félagslegum, efnislegum og sögulegum augnablikum í margradda, litríkar sögur. Með því að nýta notaðan vefnaðarvöru, gler, brotajárn, náttúruleg litarefni, aukaafurðir landbúnaðar, félagsleg kynni og fjarlægar sögur, rannsakar hún á verklegan hátt, og undirstrikar handverk sem fræ fyrir félagslega, efnislega og umhverfislega næmi. Hún býður öðrum inn í helli möguleika, allt frá stórum innsetningum til leiklistarsmiðja og kvikmynda, allt handsmíðað með það að markmiði að teygja magann í átt að rótakenndri sameiginlegri ímyndun. Hún er kennari við Dirty Art Department við Sandberg Instituut þar sem hún lauk einnig MA gráðu árið 2016. Þar á undan lauk hún BA gráðu í hönnunar, miðlun og stafrænum hugvísindum við UCLA árið 2013.

Brák Jónsdóttir er starfandi myndlistarmaður á Íslandi. Hún útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar kanna þemu frá forsögu til ímyndaðrar framtíðar, segja frá skálduðum atburðum sem blása lífi í útdauð dýr eða verur af öðrum heimi. Hún brúar bil þekkingar með goðsögum, skapar tótemískar skúlptúrinnsetningar og kafar ofan í spennuna milli hins tilbúna og náttúrulega. Ef til vill hrollvekjandi við fyrstu sýn, búa verk Brákar þó yfir blíðu, næmni og húmor þar sem skynrænar tilgátur spretta upp úr staðreyndum. Dularfullar frásagnir í gegnum furðuleg vistkerfi, kveikja tilvistarspurningar og bjóða áhorfendum að ígrunda leyndardóma lífsins.

Hugo Llanes útskrifaðist frá MA í myndlist við Listaháskóla Íslands og er virkur meðlimur Artist in Iceland Visa Action Group. Hann hlaut nýverið tilnefningu PECDA (Young Creators fund Veracruz State) og er um þessar mundir staddur í Saari Residency Programe af KONE Foundation, Finnlandi. Verk hans fela í sér rannsókn á félagspólitískum sprungum og þeirri fagurfræði sem brýst út úr þeim. Hann skoðar félagslegar aðstæður, svo sem fólksflutninga, dreifingu matar, misbeitingu valds og áhrif síðnýlendustefnunnar á nýja sjálfsmynd Suður-Ameríku. Til að lýsa þessu notar hann listrænar rannsóknir og miðla eins og viðhaldslist, gjörninga, innsetningar, staðbundna list, þátttökulist, vídeó og málverk.

Frá því að Sigurður Ámundason útskrifaðist úr Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2012, hefur hann haldið tólf einkasýningar, tekið þátt í fjölda samsýninga og flutt óteljandi gjörninga. Sigurður vinnur mest með teikningu og gjörninga en hefur notist við hina ýmsu listmiðla, hvort sem um er að ræða skrif, ljósmyndir, innsetningar, vídeó-verk, skúlptúr eða bókverk. Sigurður hefur kennt í Myndlistarskólanum í Reyjavík og við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Árið 2020 hlaut hann tilnefningu til Hvatningarverðlauna Íslensku Myndlistarverðlaunanna Myndlist Sigurðar reynir að takast á við takmörk mannlegra samskipta og angist þeirri sem hlýst af óuppgerðum tilfinningum, misskilningi og hégóma.