21.05.2024

Fréttir

Kæru fulltrúar!

Hér með boðar stjórn til ársfundar Nýlistasafnsins, þriðjudaginn 4. júní kl. 17:00 í húsakynnum safnsins á annarri hæð Marshallhússins, Grandagarði 20, 101 Reykjavík.

Fundardagskrá  
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur fyrir árið 2023 kynntur   
3. Nýir fulltrúar taldir upp
4. Kjör stjórnar

HLÉ

5. Fjárhagsáætlun 2024 kynnt og ársgjald 2025 ákveðið

6. Niðurstöður kosninga kunngjörðar

7. Önnur mál

Upplýsingar varðandi ársfund

Kosið verður um þrjú sæti í varastjórn til eins árs setu og formanns til eins árs. 

Sunna Ástþórsdóttir býður sig fram til áframhaldandi formennsku. Auður Ómarsdóttir og Þorsteinn Eyfjörð gefa ekki kost á sér áfram til varastjórnar og eru öll þrjú sæti laus.

Einstaklingar sem hafa áhuga á að gegna stjórnarstörfum eru beðnir að tilkynna framboð til skrifstofu Nýló með því að senda póst á nylo(hjá)nylo.is eða tilkynna framboð í upphafi fundar. 

Stjórn safnsins er æðsta vald í málefnum Nýló og til að gefa áhugasömum samhengi er hér reynt að gera hlutverki hennar örlítil skil. Framlag stjórnar er í formi sjálfboðastarfs og tekur þar með mið af tíma og orku hvers og eins en miðað er við að þau sem bjóða fram krafta sína geti tekið virkan þátt í starfseminni og þeim margvíslegu verkefnum sem henni fylgja. Stjórn mótar stefnu safnsins á opinberum vettvangi og helstu ákvarðanir er varða starfsemi Nýló fara í gegnum stjórnina. Til að mynda velur stjórn sýningar og tekur afstöðu til gjafa í safneign. Stjórn hittist mánaðarlega á stjórnarfundum þar sem farið er yfir helstu atriði, en hittist oftar í kringum sérstök verkefni. Stundum er stjórn kölluð til í aðkallandi verkefni, til að mynda meðan á uppsetningu stendur og því er ákjósanlegt að stjórnarmeðlimir séu búsettir á Íslandi. Að sitja í stjórn Nýló er tækifæri til þess að hafa áhrif og koma hugmyndum sínum um starf safnsins í farveg, móta landslag safneignar, taka beinan þátt í sýningarhaldi og öðrum verkefnum.

Athugið að aðeins hafa þau atkvæðisrétt sem greitt hafa ársgjöld fyrir árið 2024. Ársgjaldið verður sent fulltrúum í heimabanka þeirra í þessari viku og er upp á 3.900 kr.

Til að greiða atkvæði sitt hafa fulltrúar tvær leiðir:

1. Þau sem mæta á fund fylla út kosningaseðil á fundinum.
2. Þau sem eru utan höfuðborgarsvæðisins eða erlendis geta sent símanúmerið sitt fyrir kl 12:00, 3. júní á nylo(hjá)nylo.is og hringir trúnaðarmaður í þá af fundinum.
 
Ef til kosninga kemur munu hringingar hefjast klukkan 17.15 og geta fulltrúar þá greint frá atkvæðum sínum. 

— Óháður trúnaðarmaður mun taka við og skrá innsend atkvæði.    

— Tveir talningamenn úr röðum fulltrúa verða valdir á fundinum.    

— Kosningu hljóta þeir frambjóðendur er fá flest atkvæði.    

— Verði atkvæðafjöldi tveggja eða fleiri frambjóðenda jafn, skal kosið aftur og þá aðeins á milli þeirra frambjóðenda er fá jafn mörg atkvæði.    

— Greint verður frá niðurstöðu kosninga á vefsíðu safnsins fljótlega að fundi loknum.
 
Núverandi stjórn:
Sunna Ástþórsdóttir, formaður
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, varaformaður
Lukas Bury, meðstjórnandi
Joe Keys, gjaldkeri
Deepa Iyengar, ritari

Núverandi varastjórn:
Auður Ómarsdóttir (gefur ekki kost á sér áfram)
Þorsteinn Eyfjörð (gefur ekki kost á sér áfram)

Allir fulltrúar Nýlistasafnsins eru velkomnir og boðið verður upp á léttar veitingar!
 
Við hlökkum til að sjá ykkur! 