26.03.2021
Kæru fulltrúar!
Hér með boðar stjórn Nýlistasafnsins til ársfundar, miðvikudaginn 28. apríl kl. 17:30. Gert er ráð fyrir að fundurinn fari fram í húsakynnum safnsins í Marshallhúsinu, en sökum heimsfaraldurs munum við aðlaga fyrirkomulag fundarins að ríkjandi sóttvarnarráðstöfunum, í samræmi við skipulagsskrá safnsins. Við sendum út nánari upplýsingar um leið og aðstæður skýrast.
Fundardagskrá
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur
- Nýir fulltrúar taldir upp
- Kynning frambjóðenda
- Kjör stjórnar – kosið er um sæti formanns, fjögur sæti aðalstjórnar og þrjú sæti varastjórnar.
HLÉ (talning atkvæða)
- Fjárhagsáætlun kynnt og ársgjald 2022 ákveðið
- Niðurstöður kosninga kunngjörðar
- Önnur mál
Formanns- og stjórnarkosning
Kosið verður um öll sæti stjórnar og varastjórnar: Formann til eins árs, fjögur sæti í aðalstjórn til tveggja ára og þrjú sæti í varastjórn til eins árs.
Dorothée Kirch, formaður stjórnar mun ekki gefa áfram kost á sér til formanns. Hún hefur sagt starfi sínu sem safnstjóri Nýlistasafnsins lausu og lýkur störfum fyrir safnið í lok júní á þessu ári. Dorothée var kosin sem formaður stjórnar á ársfundi í maí 2018. Hún var síðan ráðin sem safnstjóri Nýlistasafnsins og hefur gegnt starfinu síðan í ágúst 2018.
Skv. 6. gr. í skipulagsskrá ræður stjórn Nýlistasafnsins einstakling sem er ábyrgur fyrir starfsemi safnsins í fullt starf eða hlutastarf, svo og annað starfsfólk. Kjörin stjórn mun því huga að vali og ráðningu nýs safnstjóra í kjölfar ársfundar.
Einstaklingar sem hafa áhuga á að gegna stjórnarstörfum eru beðnir að tilkynna framboð til skrifstofu Nýló með því að senda póst á nylo(hjá)nylo.is eða tilkynna framboð í upphafi fundar.
Upplýsingar varðandi ársfund
Aðeins hafa þeir atkvæðisrétt sem greitt hafa ársgjöld fyrir árið 2021. Ársgjald safnsins upp á 3.900 kr. verður sent í heimabankann ykkar á næstu dögum, einnig verður hægt að greiða gjaldið á fundinum.
Tveimur vikum fyrir ársfund, 14. apríl, mun stjórn fylgja þessu bréfi eftir og tilkynna þau framboð sem hafa þá borist.
Atkvæðagreiðsla:
Hægt verður að greiða atkvæði með kosningaseðli í Nýlistasafninu eða í gegnum síma.
Allar nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna verða sendar í bréfi 14. Apríl 2021, tveimur vikum fyrir ársfund.
Núverandi stjórn:
Dorothée Kirch - formaður
Anna Líndal- varaformaður
Amanda Riffo- gjaldkeri
Claire Paugam - ritari
Kristín Rúnarsdóttir - meðstjórnandi
Núverandi varastjórn:
Auður Lóa Guðnadóttir
Daniel Reuter
Þorsteinn Eyfjörð
Allir fulltrúar Nýlistasafnsins eru velkomnir!
Mynd með frétt: Frá yfirlitssýningu Ástu Ólafsdóttur í Nýlistasafninu, haustið 2020. Ljósmynd: Vigfús Birgisson.