17.05.2022

Fréttir

Kæru fulltrúar!
Hér með boðar stjórn til ársfundar Nýlistasafnsins, þriðjudaginn 31. maí kl. 17:00  í húsakynnum safnsins á annarri hæð Marshallhússins, 101 Reykjavík.

Fundardagskrá    

1. Skýrsla stjórnar

2. Ársreikningur 2021

3. Nýir fulltrúar taldir upp

4. Kjör stjórnar

Hlé

5. Fjárhagsáætlun 2022 og fulltrúagjöld

6. Niðurstöður kosninga

7. Önnur mál

Upplýsingar varðandi ársfund

Árlega skal kosið um sæti formanns og þrjú sæti til varastjórnar.

Fjögur framboð hafa borist. Sunna Ástþórsdóttir býður sig fram til áframhaldandi formennsku, Auður Ómarsdóttir, Nermine El Ansari og Lúkas Bury bjóða sig fram til áframhaldandi setu í varastjórn.

Eftirtaldir stjórnarmenn voru kosnir til tveggja ára á aðalfundi 2021: Claire Paugam, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Margrét Dúa Landmark, Þorsteinn Eyfjörð.

Fulltrúar sem hafa áhuga á að gegna stjórnarstörfum eru beðnir að tilkynna framboð  til skrifstofu Nýló með því að senda póst á nylo(hjá)nylo.is eða tilkynna framboð í upphafi fundar.

Athugið að aðeins hafa þau atkvæðisrétt sem greitt hafa ársgjöld fyrir árið 2022. Ársgjaldið hefur verið sent fulltrúum í heimbanka þeirra og er upp á 3.900 kr. 

Til að greiða atkvæði sitt hafa fulltrúar tvær leiðir:

1. Þeir sem mæta á fund fylla út kosningaseðil á fundinum.

2. Þeir sem eru utan höfuðborgarsvæðisins eða erlendis geta sent símanúmerið sitt fyrir 30. maí á nylo(hjá)nylo.is og hringir trúnaðarmaður í þá af fundinum.

Hringingar hefjast klukkan 17:00 eða í upphafi fundar og geta fulltrúar þá greint frá atkvæðum sínum.    

Óháður trúnaðarmaður mun taka við og skrá innsend atkvæði.   

Tveir talningamenn úr röðum fulltrúa verða valdir á fundinum.    

Kosningu hljóta þeir frambjóðendur er fá flest atkvæði. Verði atkvæðafjöldi tveggja eða fleiri frambjóðenda jafn, skal kosið aftur og þá aðeins á milli þeirra frambjóðenda er fá jafn mörg atkvæði. Greint verður frá niðurstöðu kosninga á vefsíðu safnsins fyrstu vikuna í júní.

Núverandi stjórn:

Sunna Ástþórsdóttir formaður
Claire Paugam, varaformaður
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, meðstjórnandi
Margrét Dúa Landmark, ritari
Þorsteinn Eyfjörð, gjaldkeri

Núverandi varastjórn:

Auður Ómarsdóttir
Lúkas Bury
Nermine El Ansari 

Allir fulltrúar Nýlistasafnsins eru velkomnir! Við hlökkum til að sjá ykkur!