20.05.2026

Fréttir

Kæru fulltrúar!

Nýlistasafnið minnir á ársfund miðvikudaginn 20. maí kl. 17:00. Fundurinn fer fram í húsakynnum safnsins í Marshallhúsi, Grandagarði 20, 101 Reykjavík.

Athugið að aðeins hafa þau atkvæðisrétt sem greitt hafa ársgjöld fyrir árið 2025. Ársgjaldið er 4.300 kr. og hefur verið sent í heimbanka.

Fundardagskrá    

1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2025
3. Nýir fulltrúar taldir upp

4. Kynning frambjóðenda
5. Kjör stjórnar

Hlé

6. Fjárhagsáætlun og fulltrúagjöld
7. Niðurstöður kosninga
8. Önnur mál

Kjör stjórnar

Á hverju ári er kosið um sæti formanns og þrjú sæti til varastjórnar. Á fundinum að þessu sinni verður einnig kosið um tvö sæti í aðalstjórn, þar sem að Sadie Cook og Joe Keys sem kosin voru í aðalstjórn til tveggja ára árið 2025, hafa ákveðið að stíga úr stjórn.

Framboð sem hafa þegar borist

Heiðar Kári Rannversson býður sig fram til áframhaldandi formennsku og Sigríður Regína Sigþórsdóttir býður sig fram til áframhaldandi setu í varastjórn.

Stjórnarseta

Stjórn safnsins er æðsta vald í málefnum Nýlistasafnsins. Framlag stjórnar er sjálfboðastarfs en búist er við að þau sem bjóða fram krafta sína geti tekið virkan þátt í starfseminni og þeim margvíslegu verkefnum sem henni fylgja. Stjórn mótar stefnu safnsins á opinberum vettvangi og helstu ákvarðanir er varða starfsemi Nýló fara fyrir stjórnina; til dæmis velur stjórn sýningar og tekur afstöðu til gjafa í safneign. Stjórn ber einnig ábyrgð á starfsfólki safnsins sem formlegir vinnuveitendur þess. Stjórn hittist reglulega og fer er yfir helstu verkefni og er því ákjósanlegt að stjórnarmeðlimir séu búsettir á Íslandi. Að sitja í stjórn Nýló er einstakt tækifæri til þess að hafa áhrif á mótun safnsins og taka beinan þátt í sýningarhaldi og öðrum verkefnum.

Fulltrúar sem hafa áhuga á að gegna stjórnarstörfum eru beðnir að tilkynna framboð til skrifstofu Nýló með því að senda póst á nylo(hjá)nylo.is eða tilkynna framboð í upphafi fundar.

Önnur Mál:

1. Safneign Nýlistasafnsins – núverandi staða og framtíðarhorfur

Á undanförnum mánuðum hefur orðið ljóst að varðveislurými Nýlistasafnsins í Völvufelli í Breiðholti er ekki lengur fullnægjandi sem geymsla undir listaverk né vinnuaðstaða fyrir safneignarfulltrúa. Ástæðurnar eru fjölmargar: Það stendur til að rífa húsnæðið á næstu árum og hefur borgin því nánast hætt öllu viðhaldi á byggingunni sem nú er illa farin af skemmdum og raka. Þá hefur hiti og rafmagn verið í ólagi í lengri tíma.

Það er því tímabært að huga að flutningi á safneign á allra næstu misserum og hefur starfsfólk og stjórn safnsins hafið undirbúning fyrir verkefnið. Sem hluta af þessari vinnu þáði Nýlistasafnið boð um að taka þátt í Starfshópi um framtíðarfyrirkomulag varðveislurýma fyrir listasöfn í febrúar á þessu ári. Starfshópinn skipar Heiðar Kári Rannversson, formaður stjórnar Nýlistasafnsins, fulltrúar frá Listasafni Reykjavíkur, Menningar- og íþróttasviði Reykjavíkur en auk þess munu fulltrúar frá Listasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti koma að vinnunni. Ábyrgðarmaður er Arnfríður S. Valdimarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg.

Hlutverk starfshópsins er að skoða kosti þess að móta heildstæða framtíðarsýn um varðveislu rými fyrir Nýlistasafnið og Listasafn Reykjavíkur, og eftir atvikum einnig Listasafn Íslands. Áætlað er að starfshópurinn hefji störf í apríl og munu skila tillögum fyrir lok árs 2026.

Tekið skal fram að starfshópurinn skilar einungis tillögum en þær munu vera bornar undir stjórn og fulltrúa safnsins áður en frekari ákvarðanir verði teknar um framtíð safneignar Nýlistasafnsins. Frekari upplýsingar um starfshópinn má finna í Fundargerð Menningar- og íþróttaráðs þann 13.2.2026.

Á fundinum verða fulltrúar safnsins hvattir til þess koma með athugasemdir og hugmyndir varðandi safneignina – rödd ykkar er afar mikilvæg þar sem safneign Nýlistasafnsins er sameign okkar allra.

2. Kosningar og seta í stjórn Nýlistasafnsins – fyrirkomulag og framkvæmd

Á síðustu ársfundum hefur verið rætt um fyrirkomulag og framkvæmd kosninga, m.a. símakosningu, og hvort breyta eigi lengd á setu formanns og stjórnar. Lagt verður til að stofna starfshóp fulltrúa sem skoðar þessi mál til hlítar.

Allir fulltrúar Nýlistasafnsins eru velkomnir. Við hlökkum til að sjá ykkur!