Dagbókar og Klippimyndasmiðja

Nýlistasafnið býður þig velkominn á opna dagbókar- og klippimyndasmiðju þann 14. apríl kl. 17:00 til 20:00. Smiðjunni er stýrt af Sofiu Ragkavi, starfsnema okkar frá Grikklandi! Saman munum við njóta huggulegrar stundar þar sem við lærum að búa til klippimynda dagbókarfærslu frá grunni, ræða saman um innblástu, fræðast um Nýló og hlusta á tónlist!
Ef til vill ert þú að velta fyrir þér hvað klippimynda-dagbók (e. Junk Journaling) sé; það er skapandi leið til að skrá og safna minningum, hugmyndum og innblæstri með því að nota fundið og endurunnið efni. Það er engin ein rétt leið til að búa til klippimynda-dagbók, möguleikarnir eru óendanlegir!
Þú getur fundið innblástur í daglegu lífi og notað hluti sem þú hefur greiðan aðgang að, hluti sem þú finnur heima hjá þér eða í þínu nánasta umhverfi og myndir annars henda. Til dæmis bæklinga, pappírspoka, dagblöð, tímarit og jafnvel miða! Þér er velkomið að koma með þínar eigin minnisbækur og það efni (t.d. skæri, límmiða, límstifti) sem þú vilt nota. Safnið mun einnig útvega nauðsynleg efni, svo þetta getur verið lærdómsrík, skapandi og eftirminnileg upplifun!