06.11.2022

Viðburðir

Til sýnis: Leiðsögn sýningarstjóra

Verið velkomin á leiðsögn  Yndu Eldborgar og Viktoríu Guðnadóttur, sem stýra sýningunni Til sýnis: Hinsegin umfram aðra. Viðburðurinn er ókeypis, og verður bæði á íslensku og ensku. 

Sýningin spannar bæði verk úr safneign Nýlistasafnsins, valin með hinsegin gleraugum og áralangri þekkingu sýningarstýranna, svo og ný verk sköpuð af hinsegin myndlistarfólki. Á haustmánuðum 2021 fóru Ynda og Viktoría í gegnum safneign Nýlistasafnsins, og völdu nokkur verk sem hægt er að sjá eða túlka sem hinsegin. Listafólkinu var svo boðið að skapa ný verk sem kallast á við hluta þeirra verka sem Ynda og Viktoría höfðu forvalið, og þannig dregið fram og  hafið sjónrænt samtal við hinseginleika verka úr safneign. Listafólkinu var frjálst að velja hvaða verk sem var og búa til nýtt verk án þess að nokkrar hömlur væru lagðar á vinnu þeirra eða efnis meðferð. Nýju verkin og verkin úr safneigninni eru svo sýnd samhliða.