26.01.2023

17:00—20:00

Viðburðir

Sýningaropnun: Brot af annars konar þekkingu

Velkomin á opnun sýningarinnar Brot af annars konar þekkingu í Nýlistasafninu, Marshallhúsinu, 26. mars kl. 17—20. Í tilefni Fimmtudagsins langa er safnið opið til kl. 21:00.

Um sýninguna
Sýningin Brot af annars konar þekkingu stiklar á stóru í þriggja ára rannsóknarverkefninu og sýningarröðinni Annars konar þekking sem hófst í MeetFactory galleríinu í Prag, Tékklandi. Hún státar af verkum völdum af Terezu Jindrová og Evu B. Riebová og beinir sjónum að auðkennandi verkum sem hafa verið sýnd á þeim tíu sýningum sem hafa heyrt undir Annars konar þekking.

Þemu sýningarinnar eru meðal annars andleg málefni; breytt ástand vitundar og hugvíkkandi efni; viska bundin við náttúru og samfélög fólks, „venjuleiki“ og stofnanavæðing; hugsun og reynsla miðluð með líkamanum; handverk og hæglætislífstíll tengdur því; heimssýn fólks með skyn- eða líkamlegar fatlanir; uppgötvun og ævintýri; gervigreind og síðast en ekki síst, listrænar rannsóknir sem sérstök tegund þekkingar.

Sýningin er afrakstur samstarfs við List án Landamæra, og dregur öll þessi ólíku umfjöllunarefni saman á einn stað. Hún býður að mestu leyti upp á verk tékknesks listafólks sem mörg hver voru pöntuð beint af MeetFactory Gallery. Að auki inniheldur sýningin þónokkur verk eftir íslenskt listafólk sem hafa ekki verið hluti af fyrri sýningum í röðinni, en kallast afar vel á við þemun og bæta við nýjum lögum af merkingu.
 
Með stuðningi frá Íslandi, Lichtenstein og Noregi í gegnum EEA uppbyggingarstyrkina og menningarmálaráðuneyti Tékklands.