Óróapúls: Málþing um hljóð sem verkfæri í listum og vísindum
Óróapúls: Umræður um hljóð sem verkfæri í listum og vísindum
Í tilefni sýningarinnar Óróapúls efnir Nýlistasafnið til umræðna um hljóð sem verkfæri í listum og vísindum, fimmtudaginn langa 26. mars kl. 17-18!
Á viðburðinum munu listamenn sýningarinnar, Ben Frost og Francesco Fabris, segja frá vinnuferli sínu við gerð verksins. Auk þeirra munu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri í náttúruváreftirliti hjá Veðurstofu Íslands, og Páll Einarsson, prófessor í Jarðeðlisfræði ræða um verkið, þau öfl og hugtök sem að baki því liggja og velta fyrir sér tenglsum hljóðs og eldsumbrota í þessu samhengi. Þorsteinn Eyfjörð, sýningarstjóri sýningarinnar, stýrir umræðum.
Páll Einarsson er prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann var sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskólans frá 1975 og síðar prófessor í jarðeðlisfræði til 2017.
Páll hefur einnig verið virkur sem tónlistarmaður allt frá æskuárum og hefur leikið með fjölmörgum hljómsveitum og tónlistarhópum, ýmist á selló eða kontrabassa. Hann var einn af stofnfélögum Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna og var stjórnarformaður hennar í 35 ár. Páll hefur einnig átt sæti í Vísindaráði Almannavarna frá stofnun þess.
Kristín Jónsdóttir er eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur og starfar sem hópstjóri í náttúruváreftirliti hjá Veðurstofu Íslands. Hún er einnig virk í Vísindaráði Almannavarna og heldur iðulega erindi á íbúafundum víða um land. Kristín var á yngri árum virk sem tónlistarkona og starfaði meðal annars með Unun á fyrstu árum hljómsveitarinnar.
Ben Frost er ástralskt/íslenskt tónskáld og hljóðlistamaður fæddur í Melbourne. Verk hans spanna stúdíóupptökur, lifandi flutning og innsetningar og tengjast oft dansi, leikhúsi og kvikmyndum. Meðal þekktustu platna hans eru Aurora (2014), The Centre Cannot Hold (2017) og Scope Neglect (2024). Hann hefur einnig samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarp, meðal annars Raised by Wolves, 1899 og Dark, og skrifað og leikstýrt óperunum The Wasp Factory og The Murder of Halit Yozgat.
Francesco Fabris er ítalskur þverfaglegur listamaður og tónskáld búsettur í Reykjavík. Hann vinnur með lifandi rafeindatækni, hljóð- og myndflutning og margmiðlunarinnsetningar og rannsakar hvernig náttúrulegt umhverfi má þýða yfir í abstrakt hljóð- og myndmál með vettvangsupptökum, rýmisvæðingu hljóðs og hljóðvæðingu gagna. Verk hans tengjast kvikmyndum, sjónvarpi og myndlist, meðal annars All Quiet on the Western Front, Dark, Conclave og Dune: Prophecy.
Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson er mynd- og tónlistarmaður sem starfar og býr í Reykjavík. Hann nam myndlist við Listaháskóla Íslands og KABK í Den Haag í Hollandi og vinnur í dag jöfnum höndum að myndlist og tónsköpun þvert á miðla. Verk hans, sem oft byggja á rýmisbundnu hljóði og þverfaglegu samstarfi bera vitni um næma tilfinningu fyrir hljóði og rými. Sem sýningarstjóri jafnt sem og í listsköpun sinni leggur Þorsteinn áherslu á hljóð sem tjáningar- og umbreytingarmiðil og kannar möguleika þess í ólíkum samhengjum.
Málþingið fer fram á íslensku og ensku.