20.03.2026

20:00—22:00

Viðburðir

Opnun: Óróapúls

Nýlistasafnið býður ykkur hjartanlega velkomin á opnun hljóðverksins Óróapúls eftir listamennina Ben Frost og Francesco Fabris, föstudaginn 20. mars húsið opnar kl. 20:00 og lifandi flutningur hefst kl. 20:30 og stendur yfir í um klukkustund. Sýningarstjóri er Þorsteinn Eyfjörð.

Óróapúls sprettur út frá margra ára vettvangsrannsókn á þeim margbrotnu umbreytingum sem áttu sér stað á Reykjanesskaga, í kjölfar eldsumbrota á svæðinu á árunum 2021-2023. Verkið nálgast jörðina sem hljóðuppsrettu, þar sem landslag er ekki túlkað sem kyrrstæður hlutur, heldur atburðarás í óþrjótandi flæði. Listamennirnir notast við fjölbreytilegar aðferðir til að skrásetja þessar jarðhræringar; upptökur af eldsprengingum og skarkala skráðum á segulband, sveiflumælitæki nema dýpstu bylgjur, og snertihljóðnemar lagðir ofan á heita skorpuna magna upp viðkvæmustu bresti. Hljóðið ferðast um hringóma hátalarakerfi og umbreytir salnum í rými þar sem land mótast og eyðist í sífellu. Þannig framkallar verkið hálfgerða tímaleysu, hljóðið ber með sér minningar og kraftmikla endurnýjun: Skrásetning á fortíðinni lifnar við og vekur jarðlögin á ný.

Yfir sýningartímann munu átta hljóðkeilur, fylltar hraunsandi frá gosstöðvunum, anda sandinum frá sér í gegnum upptökurnar. Fíngert sáldrið fellur á gólfið og myndar óreglulegar teikningar í hægri, stöðugri framvindu. Smám saman safnast sandurinn upp, lag ofan á lag – eins konar skrásetning á tímalínu sem teygir anga sína út fyrir skilningarvitin og gerir okkur kleift að upplifa náttúruna, ekki sem afurð, heldur sem gjörð.