OPNUN: Lífsmynstur – Öll Þessi ár

Verið hjartanlega velkomin á opnun einkasýningar Þórdísar Öldu Sigurðardóttur Lífsmynstur – Öll þessi ár í Nýlistasafninu næstkomandi laugardag frá 17 - 19!
Sýningin Lífsmynstur – Öll þessi ár er persónuleg könnun Þórdísar Öldu Sigurðardóttur á tengslum mannverunnar við umhverfi sitt. Hún rannsakar hugmyndina um „náttúru“ sem línu milli okkar og heimsins í kringum okkur – línu sem við nánari skoðun reynist tilbúningur og sífellt óljósari í samtímanum. Á sýningunni endurspeglar hún eigin minningar í breyttu landslagi mannlífs og umhverfisins á Íslandi. Með næmni og forvitni skoðar hún hvernig þessi tengsl hafa þróast í gegnum tíðina. Áhorfendum bíðst að staldra við og endurhugsa eigin stað í heildarmyndinni.
Þórdís Alda Sigurðardóttir (f. 1950 í Reykjavík) er myndlistarkona sem býr og starfar í Mosfellsbæ og Skagafirði. Hún nam við Kennaraháskóla Íslands, Myndlistarskóla Reykjavíkur, Mynd- og handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München, Þýskalandi. Þórdís hefur verið virkur þátttakandi í myndlistarlífi Íslands í áratugi og tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis, m.a. í Listasafni Reykjavíkur, Listasafninu á Akureyri, Galleri Katedralen í Danmörku og Arka gallerí í Litháen. Hún er félagi í SÍM, MHR, Royal Society of Sculptors í Bretlandi og Akademíu skynunarinnar. Í verkum hennar eru efniviður, skynjun, minningar og umhverfi í forgrunni, þar sem hún skapar marglaga og persónulegt myndmál. Verk hennar hafa verið sýnd víða um Ísland, í Evrópu og Bandaríkjunum.