Opnun: Umbreyting

Umbreyting: Biðstofan opnar nýja sýningu 25. júní kl. 18:00.
Vélmenni, saxófónn á húsþaki, svarthol, riffill, rass og ástfangnir slökkvibílar eru meðal fyrirbæra sem gusta um gjörningaarkíf Nýlistasafnsins. Önnur sýning Biðstofunnar, Millilending, rekur slóð hugmynda og listamanna sem hafa ferðast lengi eða komið stuttlega við á Íslandi og valdið óróa, hlátri eða hneykslun. Verk sem hafa komið af stað hreyfingum og skilið eftir sig varanleg áhrif.
Móttaka biðstofunnar opnar: Átt þú gögn um gjörninga sem eiga heima í arkífinu?
Við óskum eftir gögnum um gjörninga til þess að geyma í arkífinu. Gögnin geta verið af ýmsum toga, til dæmis ljósmyndir, upptökur, handrit, sýningarskrár eða blaðaklippur, en einnig hlutir, búningar og annað tengt gjörningum. Hvetjum alla til að mæta með efnið í Nýlistasafnið á opnun Biðstofunnar eða á opnunartímum safnsins.
*Vegna stærri gjafa þarf að senda póst á jenny(hjá)nylo.is
Nýlistasafnið hlaut nýverið Öndvegisstyrk úr Safnasjóði í tengslum við 50 ára starfsafmæli safnsins árið 2028 og hrindir nú af stað stóru þriggja ára verkefni þar sem þessum merka áfanga safnsins verður fagnað. Fyrsti hluti verkefnisins er rannsókn og miðlun á heimildasafni Nýlistasafnsins sem verður aðgengilegt í nýju fjölnotarými sem nú er að taka á sig mynd í rými safnsins í Marshallhúsi. Þar verður lista- og fræðafólki boðið að rannsaka heimildir safnsins, setja fram og túlka í gegnum sýningar og viðburði en einnig verður kallað eftir fleiri heimildum í söfnin.
Ljósmynd úr safneign Nýlistasafnsins, óþekktur höfundur og uppákoma.