07.06.2025

16:00—18:00

Viðburðir

OPNUN: Sending frá Svalbarðseyri

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Sending frá Svalbarðseyri næst komandi laugardag, þann 7. júní klukkan 16:00-18:00.

Listamenn eru:

Ása Ketilsdóttir 

Atli Viðar Engilbertsson 

Björn Líndal Guðmundsson (1906 - 1996)

Edda Guðmundsdóttir 

Egill Ólafur Guðmundsson (1908-1997) 

Eiríkur Júlíus Guðmundsson (1909-2008)

Erla Björk Sigmundardóttir 

Finnur Ingi Erlendsson 

Friðrik Hansen (1947-2005)

Guðjón R. Sigurðsson (1903 - 1991)

Guðrún Nilsen (1914-2000)

Gunnar Sigfús Kárason (1931 - 1996)

Halldóra Kristinsdóttir (1930-2013) 

Helga Dómhildur Alfreðsdóttir 

Hildur Kristín Jakobsdóttir (1935-2003) 

Hjálmar Stefánsson frá Smyrlabergi (1913-1989)

Hrefna Sigurðardóttir (1920-2015)

Ingvar Ellert Óskarsson (1944-1992)

Laufey Jónsdóttir 

Matthías Mar Einarsson 

Pálmi Kristinn Arngrímsson (1930-2015)

Pétur Hraunfjörð (1922-1999)

Sigurður Sveinsson (1904-2006)

Snæbjörn Eyólfsson (1897-1973)

Steinþór Leósson (1888-1967)

Svava Skúladóttir (1909-2005)

Yngvi Örn Guðmundsson (1938-2022)

Þórhalla Snæþórsdóttir

Örn Karlsson

Um sýninguna:

Undir Vaðlaheiði, með lítinn læk til norðurs og dýr á beit til suðurs stendur Safnasafnið með sístækkandi safn listaverka, skjalasafn, stofuplöntur, sýningarsali, bókasafn, gestaíbúð og heimili. Safnasafnið varðveitir ekki einungis stærsta safn alþýðulistar á landinu heldur er jafnframt heimili stofnenda þess, Magnhildar og Níelsar, í senn umgjörð um safnastarf og daglegt líf. Á þeim forsendum bjóða þau gesti velkomna af einstakri gestrisni sem sker sig úr almennri safna menningu. Í störfum Safnasafnsins er ástunduð aðlaðandi jafnvægislist þar sem vegið er salt með alþýðu- og samtímalist og alla þá leyndardóma sem má upp ljúka þegar rýmið þar á milli er kannað.

Þegar hugsað er um söfn, eru það ekki endilega þeir einstaklingar sem að baki þeim standa sem koma upp í hugann. Í tilfelli Nýlistasafnsins þekkjum við fjölda þeirra listamanna og sjálfboðaliða sem komið hafa að starfsemi þess. Við hugum líka að þeim hópi fólk sem kemur að starfi Safnasafnsins - en umfram allt eignum við staðfestuna og ósérhlífnina þeim Níels og Magnhildi. 

Bæði Safnasafnið og Nýlistasafnið voru stofnuð til að koma í veg fyrir að eyður mynduðust í íslenskri myndlistarsögu. Rétt eins og myndlistarmennirnir sem fundu sig jaðarsett og hundsuð - sameinuðust og stofnuðu Nýlistasafnið, dregur Safnasafnið listamenn frá jaðri að miðju.

Sýningin Sending frá Svalbarðseyri sprettur úr samstarfi safnanna tveggja, sem þó eiga sér nátengda sögu í gegnum Níels Hafstein, sem stóð að stofnun þeirra beggja. Árið 2023 stóðu Safnasafnið og Nýlistasafnið að málþinginu Innan garðs og utan: Söfnun á jaðrinum og í kjölfarið var tekin sú ákvörðun að halda upp á 30 ára afmæli Safnasafnsins með sýningu úr safnkosti þess hér í Reykjavík. Með það í huga að setja fram verk sýningarinnar í umgjörð keimlíkri þeirri sem fyrirfinnst á Safnasafninu, fylgir fagurfræði sýningarinnar hagnýtri framsetningu Safnasafnsins, fyrirkomulagi sem er hugsað út frá nytsemi: strúktúrar byggðir til að hýsa hundruði lítilla skúlptúra.

Á sýningunni má finna lítið brot af þeim fjölbreytta safnkosti sem Magnhildur og Níels hafa safnað saman í gegnum árin, allt frá sínum fyrstu kynnum. Af ást sinni á ólíkum tjáningamátum manneskjunnar og náttúrunnar, hefur þeim tekist að skapa þungamiðju fegurðar í Safnasafninu, í öllum sínum fjölbreyttu myndum.

Sýningarstjórar: Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Joe Keys, Odda Júlía Snorradóttir og Unnar Örn J. Auðarson

Ljósmynd með frétt er af verki Erlu Bjarkar Sigmundardóttur