Opnun: Setlög ljóss og tíma

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Setlög ljóss og tíma, lokasýningu meistaranema í Myndlist við Listaháskóla Íslands. Sýningin opnar 15. laugardaginn 2. maí í Nýlistasafninu.
Listamenn:
Irene Hrafnan
Kristín Einarsdóttir Cavan
Lucrezia Costa
Marco Dorn
Mirjam Maeekalle
Sepideh Safiyari
Sarah Moore
Steinunn Önnudóttir
Svend Holmboe Pedersen
Að þessu sinni sýna níu nemendur verk sín á sýningu í Nýlistasafninu. Eins og gefur að skilja er hér ekki um þematíska samsýningu að ræða heldur samsýningu þar sem hópur fólks sem hefur lagt stund á meistaranám undanfarin tvö ár sýnir verk sín. Meistaranám í myndlist er afar krefjandi nám og hafa þau öll skoðað og greint í þaula starfsaðferðir sínar og nálgun. Sýningin í Nýlistasafninu er síðasta varðan á þessari vegferð, nemendur sýna verk sín í opinberu safni og ganga þar með inn á fagvettvanginn á formlegan og táknrænan hátt.
Öll hafa þau unnið ný verk fyrir sýninguna sem að tengjast þó með óyggjandi hætti þeim verkum sem þau hafa unnið að á námstímanum. Sem sýningarstjóri hef ég hvatt þau til þess að taka sér pláss, og birta sjálfum sér og áhorfendum, sterk og afgerandi verk til þess að fagna þessum tímamótum.
Nemendur vinna með ólíka miðla og staðsetja sig þannig öll inn þeirrar hefðar samtímamyndlistar þar sem miðillinn endurspeglar það konsept sem er undir hverju sinni. Hér er einnig unnið með öll skynfæri, ekki einungis sjónina, heldur má líka heyra verkin, finna af þeim lyktina og jafnvel snerta. Samtími okkar er afar flókinn og margbrotinn og þau sem sýna hér eiga einnig afar ólíkan bakgrunn. En þau veita okkur, með listaverkum sínum, leið til þess að hugleiða, og skynja, út frá okkar eigin reynslu, afar fjölbreytt málefni. Hér má finna lyktina af starfsemi hússins fyrr á tímum, skynja upplifun af ofbeldi, sársauka og stríði, og skoða verkfæri sem er smíðað úr járni sem listamaðurinn hefur sjálfur safnað úr mýrinni nálægt heimili sínu. Hér er unnið með ljósmyndina á þann hátt sem fær okkur til þess að skilja hana, sem uppfinningu, en einnig sem áhrifamikinn hluta samtímans. Myndir fylla líf okkar, hvort sem það er í fagurfræðilegum, pólitískum eða upplýsandi skilningi. Málverkið og leið þess frá tvívíðum fleti yfir í þrívítt form sem spyr spurninga um eðli skynjunar. Og litir. Litir sem fagurfræðileg upplifun, en einnig litur sem skilgreinandi þáttur og aðgreinandi eiginleiki í samfélagi manna.
Öll eiga verkin það sameiginlegt að bræða saman efnislega og huglæga þætti listaverksins. Öll hafa þau sem sýna hér, unnið verk sem virkja skynjun og skilning, með óvæntum og áður óséðum hætti, þau eiga þannig þátt í því að smíða framtíðina.
Sýningarstjóri: Sigrún Inga Hrólfsdóttir
Fagstjóri meistaranáms í myndlist: Hildur Bjarnadóttir