Opnun: Gloppur

Verrið hjartanlega velkominá þriðju opnun Biðstofunnar: Gloppur
Sýningin opnar þann 5. September í Nýlistasafninu kl 17-19!
Biðstofan: Gloppur
Gjörningaarkífið geymir ekki sögu gjörningalistar á Íslandi heldur er það frekar tilviljanakennt samansafn hluta, ljósmynda, myndbanda, hljóðupptaka boðskorta, blaðaúrklippa og minninga sem vísa í viðburð sem einu sinni átti sér stað. Hlutirnir hafa ýmist vísvitandi verið gefnir til varðveislu um ákveðin verk eða dagað uppi á skrifstofu eða safneign Nýlistasafnsins áður en að gjörningaarkífið varð til og endað í kassa þegar þeir komu til sögunnar.
Gjörningarnir í arkífinu eru ekki valdir inn af nefnd með söfnunarstefnu heldur raðast tilviljunarkennt inn og lýsa kannski frekar tengslum listamanna við Nýló frekar en sögu gjörninga.
Þessi handahófskennda og óhefðbundna skjalasafn segir þó ýmislegt um listasöguna sem önnur söfn geta ekki sagt og er stærsta safn á Íslandi um gjörninga.
Biðstofan er liður í þriggja ára afmælis undirbúningi Nýlistasafnsins sem mun ná 50 ára aldri árið 2028. Undirbúningurinn felur meðal annars í sér rannsóknir og miðlun á heimildasöfnum Nýló. Í þessari fyrstu lotu eru það Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur sem standa að umfangsmikilli rannsókn á Gjörninga Arkífinu, ásamt seríu örsýninga í Limbó sem ætlað er að veita innsýn í framvindu rannsóknarinnar. Gloppur er þriðja og síðasta ör-sýningin í seríunni en að henni lokinni munu þau Agnes og Helena standa fyrir stórri sýningu í aðalsýningarrými safnsins.
Mynd er tekin úr kassa Unnars Arnar Auðarsonar í Gjörninga arkífi Nýlistasafnsins.