Lokahóf: Svaf allan daginn

Nú fer hver að verða síðastur að sjá einkasýningu Ívars Glóa Gunnarssonar Breiðfjörð, Svaf allan daginn. Að því tilefni býður Nýlistasafnið til lokahófs síðasta dag sýningarinnar, sunnudaginn 18. október milli kl. 16-18. Ívar Glói og Heiðar Kári Rannversson, sýningarstjóri verða á staðnum og spjalla við gesti. Öll velkomin!
Á sýningunni Svaf allan daginn hefur Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð unnið metnaðarfulla innsetningu í allt sýningarými Nýlistasafnsins, sem samanstendur af nýjum verkum unnin á þessu ári. Verkin eiga það sameiginlegt að fást við hugmyndina um mælikvarða en þau tengjast bæði innbyrðis og eru í hlutfallslegu samhengi við rými Marshallhússins.
Titill sýningarinnar gæti gefið til kynna að hér sé um að ræða einhverskonar slugsara-fagurfræði en verk listamannsins eru síður en svo unnin með hangandi hendi. Myndlist Ívars Glóa er ígrunduð og ísmeygileg þar sem verk hans búa yfir innri lógík sem er hulin áhorfendum. Þau eru skondin við fyrstu sýn en búa líka yfir alvarleika þegar betur er að gáð; það er eins og verkin séu að leitast eftir því að vera einlæg en takist það ekki og verði að skálduðum veruleika. Þegar verkin koma saman gegna þau yfirleitt ákveðnu hlutverki; sem arkitektúr, leikmyndahönnun eða leikmunir. Sýningar listamannsins varpa þannig fram spurningum um samhengi listaverksins og rýmisins sem umlykur það og hvernig það mótar skilning áhorfenda á verkinu.
Að þessu sinni býður Ívar Glói gestum að staldra við og velta fyrir sér þeim mælikvörðum sem móta allt umhverfi okkar og við tökum sem sjálfgefnum en eru í raun tilbúningur til að henda reiður á óreiðukenndan heim; vita hvað snýr upp og niður, hvað sé lítið og hvað sé stórt. Raunveruleikinn er hins vegar sá að allt er afstætt, myndlistin þar með talin.
Ágrip
Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð (f. 1992) stundaði nám við Listaháskóla Íslands (BA) og lauk framhaldsnámi við Luca School of Arts í Brussel árið 2023. Verk hans hafa verið sýnd í Art au Centre í Liège (BE), Cas-co í Leuven (BE) og víða hér á landi – meðal annars í Gerðarsafni, Harbinger og á Sequences listahátíðinni. Árið 2023 hlaut Ívar Glói hin Belgísku Cas-Co Bac verðlaun. Hann býr í Reykjavík.
Mynd: Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð