11.10.2025

14:00—15:00

Viðburðir

Listamannaspjall: Handan tímans

Verið velkomin á listamannaspjall með Sasha Huber, Santiago Mostyn, Lagos Studio Archives og Ina Nian, þar sem þau ræða verk sín á sýningunni Handan tímans og þátttöku í Sequences XII.

Handan tímans sameinar listamenn sem kanna pólitík tímans út frá sjónarhornum kynþáttahyggjunnar. Verk þeirra Santiago Mostyn, Sheida Soleimani, Ina Nian, Lagos Studio Archives og Sasha Huber endurspegla sögur nýlendustefnu, þrælahalds og kerfisbundinnar vanrækslu. Sýningin sækir innblástur í hugmyndir Christinu Sharpe um lífið „í kjölfar“ þrælahalds og skoðar hvernig tími og hæglæti eru metin og upplifuð með ólíkum hætti. Verkin varpa fram spurningum um hvaða sögur eru varðveittar, hverjum tíminn er helgaður og hvernig endurheimt tímans getur orðið að andspyrnu.

Spjallið er í umsjón sýningarstjórans Daríu Sól Andrews og fer fram á ensku. Viðburðurinn er hluti af Sequences XII: Pause og er öllum opinn og ókeypis.