Kvöldkaffi í Nýló

Verið hjartanlega velkomin í kvöldkaffi í Nýlistasafninu á löngum fimmtudegi 29. janúar frá 19-21.
Komið og skoðið ný opnaða sýningu Þórdísar Öldu Sigurðardóttur Lífsmynstur – Öll þessi ár, þiggið léttar veitingar og spjöllum í kósý heitum.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Nánar um sýninguna:
Sýningin Lífsmynstur – Öll þessi ár er persónuleg könnun Þórdísar Öldu Sigurðardóttur á tengslum mannverunnar við umhverfi sitt. Í verkum sínum rannsakar hún hugmyndina um „náttúru“ sem línu dregna á milli okkar og heimsins í kringum okkur, sem við nánari skoðun reynist vera tilbúningur. Þessi lína verður sífellt óljósari í samtímanum en Þórdís kannar hana endurtekið af næmni og forvitni.
Þórdís á í stöðugu listrænu samtali við umhverfi sitt. Hún vinnur úr hráefnum sem eru henni nærri, bæði úr fortíð og samtíð, og kallar fram nýjar tengingar með því að vefa saman minningar, efni og hugmyndir. Á sýningunni lítur hún um öxl og speglar eigin ævi og reynslu í breyttu landslagi mannlífs og umhverfisins á Íslandi – allt frá æsku sinni í sveitinni til samtíma.
Endurtekning er leiðarstef í verkum Þórdísar. Ullarbandi er vafið hring eftir hring, líkt og endurtekin taktur: andadráttur, daglegar rútínur, árstíðir, gangur jarðar. Þessi ítrekun birtist bæði sem hugmynd og aðferð, sem áminning um gangverk heimsins og mannleg þörf fyrir henda reiður á mynstrið sem tengir allt saman.
Með því að nýta kunnugleika hversdagslegra hluta og efniskennda eiginleika þeirra endurlífgar Þórdís hlutina og breytir því hvernig við umgöngumst þá. Hún leikur sér að því að færa til og afhjúpa línuna sem við drögum á milli okkar sjálfra og hins „náttúrulega heims“, á sama tíma og hún skoðar hvernig þessar hugmyndir hafa breyst og þróast í gegnum tíðina. Sauðkindin, tré og önnur hráefni íslenskra lífshátta verða að táknum fyrir lífsmynstrið sem hefur haldið samfélaginu uppi í gegnum aldirnar. Með þessu staðsetur Þórdís mannveruna innan vistkerfisins í stað þess að taka hana út fyrir sviga. Efnislegir eiginleikar hlutanna skipta þar lykilmáli; með því að gefa hversdagslegum hlutum nýtt líf virkjar hún minningar, tilfinningar og hugmyndir innra með áhorfandanum og opnar þannig leið inn í samtal þar sem hið persónulega, hið mennska og hið náttúrulega renna saman.
Lífsmynstur – Öll þessi ár leiðir saman fortíð og nútíð, minningar og landslag, og spyr hvernig skilin milli manns og náttúru hafa færst til, mýkst eða horfið.