10.01.2026

Viðburðir

Afmælis- og nýárs partý Nýló 2026!

Kæru vinir!

Nýlistasafnið fagnar nú 48. árum og af því tilefni höldum við veglegt afmælis- og nýárspartý föstudaginn 10. janúar 2026! Það verður glatt á hjalla með þéttpakkaðri dagskrá: tónlist uppákomur og alls kyns gleði!

Húsið opnar kl. 20 og aðgangseyrir er einungis 1.500 kr.- Fyrstu gestir fá fordrykk og barinn verður opinn fram á nótt með ljúffengum veigum á hagstæðu verði.

FRAMKOMA:

  • DJ Kling & Bang
  • DJ Open
  • MC Myasnoi
  • Countess Malaise & Smjörvi
  • CYBER
  • Benni Hemm Hemm & Páll Óskar
  • Kraftgalli
  • Apex Anima & FRZNTE

Kvöldið hefst með Nýló pöbbkvissi kl. 20:00!
Mætið stundvíslega ef þið viljið taka þátt - dúndur verðlaun í boði fyrir sigurvegara!

Á svæðinu verða sirkuslistamenn frá Hringleik með óvæntar uppákomur, hægt verður að snúa lukkuhjólinu, skreyta sig með gervihúðflúrum frá Jasa Baka eða í glimmerbásnum!

Afmælis- og nýárspartý Nýló er jafnframt fjáröflun fyrir safnið, sem heldur úti metnaðarfullri sýningar- og viðburðardagskrá og stendur vörð um einstaka safneign og heimildarsafn.

Hrópum húrra fyrir 48 hringum í kring um sólina og brennandi ást á listinni! Dönsum saman fram á nótt!