24.03.2023

17:00—18:00

Viðburðir

Listamannaspjall og leiktími: Amanda Riffo — House of Purkinje

Verið velkomin í listamannaspjall með Amanda Riffo, föstudaginn 24. mars kl 17:00. Amanda mun segja frá sýningunni House of Purkinje, þar sem það sem við sjáum stangast á við það sem við búumst við að sjá. Erindið fer fram á ensku og lýkur með einföldum leik.

House of Purkinje setur fram hliðstæður á milli lífeðlisfræði augans og meðvitundar okkar gagnvart umhverfinu. Sýningin er tilraun til að ræða faglega stöðu listamanna og vinnusiðferði ásamt víðtækari umræðu um vitund og mikilvægi skáldskapar – allt frá rökréttri nálgun á raunveruleikann að fantasíunni.  Frá því að fara inn í herbergi þar sem ekkert er að sjá og inn í herbergi þar sem að huga þarf að öllu

Amanda Riffo (f.1977) kemur frá Frakklandi og Chíle, en býr og starfar í Reykjavík. Eftir að hafa lokið meistaranámi við École Nationale Supérieure des Beaux-Arts, París, fór hún í skiptinám í Tókýó og Beirút. Verk hennar hafa verið sýnd í Evrópu, Japan, Íslandi, Chile, Finnlandi, Belgíu og fleiri. Meðal sýningaverkefna á Íslandi má nefna einkasýningu hennar í Open (Reykjavík, 2018) og Skaftfelli (Seyðisfirði, 2019), auk þátttöku í alþjóðlega tvíæringnum Sequences Xl (Reykjavík, 2019).

Í verkum sínum skapar Amanda æfingar, skrásetur tilraunir sem innblásnar eru af hugrænum vísindum, ljósfræði og um leið alls kyns misskilningi. Í takt við breytingar á sjónhimnu hennar vegna mikillar sjónskekkju hafa verk hennar þróast út í stöðugar efasemdir um raunveruleikann. Þessar vangaveltur eiga einnig stoðir í vinnu listamannsins utan vinnustofunnar, sem fer yfirleitt fram á kvikmyndasetti. 