29.10—17.12.2026

Sýningar

Ráðhildur Ingadóttir, Margrét Dúadóttir, Skúli Thayer, Halldór Ásgeirsson

Viðveran

Viðveran

Fjörutíu ára gamall draumur snýr aftur sem draugur, efnahagshrunið er rifjað upp frá sjónarhóli tólf ára barns, halastjarna ferðast um sólkerfið á meðan sýningunni stendur og á opnuninni hljótum við minjagrip um atburð sem er varla hafinn. Í Viðverunni koma fram fjórir listamenn sem vinna með gjörninginn á ólíkan hátt. Verkin teygja sig milli fortíðar, nútíðar og framtíðar, upp í himinhvolf og inn í undirmeðvitundina þar sem liðnir atburðir eru kallaðir fram á ný og verða að ófyrirséðum augnablikum í samspili listamanna og áhorfenda.


Á sýningunni halda Ráðhildur Ingadóttir, Margrét Dúadóttir Landmark, Skúli Thayer og Halldór Ásgeirsson atburði, eventa, gjörninga, viðburði, performansa eða uppákomur sem virkjast á ákveðnum tímapunktum yfir sýningartímabilið. 


Sýningarstjóri

Agnes Ársælsdóttir, Helena Sólveigar Aðalsteinsbur