Í GANGI

05.09—18.10.2026

Sýningar

Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð

Svaf allan daginn

1:1 

Á sýningunni Svaf allan daginn hefur Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð unnið metnaðarfulla innsetningu í allt sýningarými Nýlistasafnsins, sem samanstendur af nýjum verkum unnin á þessu ári. Verkin eiga það sameiginlegt að fást við hugmyndina um mælikvarða en þau tengjast bæði innbyrðis og eru í hlutfallslegu samhengi við rými Marshallhússins.

Titill sýningarinnar gæti gefið til kynna að hér sé um að ræða einhverskonar slugsara-fagurfræði en verk listamannsins eru síður en svo unnin með hangandi hendi. Myndlist Ívars Glóa er ígrunduð og ísmeygileg þar sem verk hans búa yfir innri lógík sem er hulin áhorfendum. Þau eru skondin við fyrstu sýn en búa líka yfir alvarleika þegar betur er að gáð; það er eins og verkin séu að leitast eftir því að vera einlæg en takist það ekki og verði að skálduðum veruleika. Þegar verkin koma saman gegna þau yfirleitt ákveðnu hlutverki; sem arkitektúr, leikmyndahönnun eða leikmunir. Sýningar listamannsins varpa þannig fram spurningum um samhengi listaverksins og rýmisins sem umlykur það og hvernig það mótar skilning áhorfenda á verkinu. 

Að þessu sinni býður Ívar Glói gestum að staldra við og velta fyrir sér þeim mælikvörðum sem móta allt umhverfi okkar og við tökum sem sjálfgefnum en eru í raun tilbúningur til að henda reiður á óreiðukenndan heim; vita hvað snýr upp og niður, hvað sé lítið og hvað sé stórt. Raunveruleikinn er hins vegar sá að allt er afstætt, myndlistin þar með talin.

Á meðan almannarýmið hefur yfirleitt skýran tilgang hvað varðar hlutverk og notkun, sem dæmi mætti nefna muninn á torgi og hringtorgi, er myndlistarsýning þeim kosti gædd að hafa ekki yfirlýsta merkingu. Hún getur staðist allar fyrirframgefnar væntingar sem sýningargestir kunna að hafa eða komið þeim alfarið í opna skjöldu, aftur og aftur í hvert sinn sem þeir ganga inn í rýmið. Þessi eiginleiki stöðugrar óvissu er bæði kostur og galli listarinnar, ástæða þess að sumir telja hana merkingarlaust bull og vitleysu. 

Það eina sem er öruggt í þessu sambandi er að það sem kemur fyrir sjónir áhorfenda þegar gengið er inn á sýningu er List. Ef gengið er fram á fisk í galleríi er nokkuð víst að um sé að ræða skúlptúr. Ef skúlptúr er settur inn í fiskbúð er hins vegar afar ólíklegt að hann verði álitinn fiskur.

Hugmyndafræði módernismans um hið tæra og sjálfum sér næga listaverk (hugsum okkur meistaraverk handan rúms og tíma) hefur fyrir alllöngu innlimað safnið og sýningarsalinn með því að breyta honum í „hvítan kassa“. Þannig verður samhengi myndlistarinnar sífellt mikilvægari í skilningi okkar og upplifun á verkinu sjálfu: „Við höfum loks náð því marki að við sjáum ekki listina heldur rýmið fyrst. (það er klisja samtímans að hrópa upp yfir sig af hrifningu yfir rýminu þegar gengið er inn í sýningarsalinn)“, skrifaði Brian O´Doherty í sígildum texta um hvíta kassann. Við lesum merkingu listaverka ekki út frá innihaldi þeirra heldur út frá því hvar þau eru staðsett í rýminu og hvernig þau eru framsett og skynjuð.

Ívar Glói er afar meðvitaður um þessa sérstöku virkni sýningarýmisins og á sýningunni í Nýlistasafninu ýkir hann kassalögun sýningarsalarins með því að reisa langan vegg fyrir glugga safnsins. Öðru megin salarins skiptir annar veggur rýminu í tvennt og býr til nýjan sal í sömu hlutföllum en nokkuð minni. Í þessum nýju rýmum má síðan virða fyrir sér verk sem öll eru háð samhengi og hlutföllum annarra hluta, innan og utan sýningarrýmisins, sem aftur eru skilgreind af öðrum mælikvörðum, og svo koll af kolli. Á sýningunni býður listamaðurinn okkur í einskonar fyrirbærafræðilegan leik (við skynjum okkur sjálf skynja), þar sem stærðarhlutföll milli sýningargesta og listaverka eru í stöðugri víxlverkun. Um leið beinist athyglin að því hvort verkin séu í raun og veru sett fram á réttan eða einlægan hátt. Hvað er raunstærð?

Sýningin Svaf allan daginn er fyrsta einkasýning Ívars Glóa í safni hér á landi en hún er rökrétt framhald af sýningu hans fluff í sýningarrými Cas-co í Leuven, Belgíu árið 2025. Þar sýndi listamaðurinn einnig stjörnuprýddan vegg og verk líkum þeim sem sjá má í Nýlistasafninu. Skalinn var hins vegar allur annar því verk Ívars Glóa eru alltaf hlutfallsleg og miða að rýminu sem umlykur þau hverju sinni. En þau eru líka afstæð í þeim skilningi að þau taka mið af öðru og óljósara samhengi sem áhorfandinn kemur ekki auga á og er kannski bara til í huga listamannsins. Mælikvarði myndlistarinnar ákvarðast nefnilega fyrst og síðast af ímyndunarafl listamannsins sjálfs (eða skorti á ímyndunarafli, eins og Ívar Glói myndi sjálfur segja), þar sem fiskar eiga sófa til að sofa í og veggir sýningarrýmisins breytast í stjörnubjartan næturhiminn. 

H.K.Rannversson.

Ágrip

Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð (f. 1992) stundaði nám við Listaháskóla Íslands (BA) og lauk framhaldsnámi við Luca School of Arts í Brussel árið 2023.  Verk hans hafa verið sýnd í Art au Centre í Liège (BE), Cas-co í Leuven (BE) og víða hér á landi – meðal annars í Gerðarsafni, Harbinger og á Sequences listahátíðinni. Árið 2023 hlaut Ívar Glói hin Belgísku Cas-Co Bac verðlaun. Hann býr í Reykjavík.


Sýningarstjóri

Heiðar Kári Rannversson