16.10—21.11.2021

Sýningar

Björk Guðnadóttir, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Gunnhildur Hauksdóttir, Pétur Magnússon

/ SKÖPUN / EYÐING /

/ SKÖPUN / EYÐING / er titill sýningar Sequences í Marshall-húsinu sem tekur yfir sýningarrými Nýlistasafnsins og Kling og Bang. Vegvísir sýningarinnar er texti Sigurðar Guðmundssonar, TÍMI, sem finna má í sýningarskrá hátíðarinnar:

„Tíminn er mikilvægur þáttur í allri list. Listin er mjög heppileg aðferð til að ferðast í tíma og rúmi. Flestar leiðir til nýrra tíma liggja gegnum listaverk. 

Við skynjum nýja myndlist, en hún opnar okkur nýjan heim sem er ekki draumur heldur veruleiki. Við látum gamla heiminn lönd og leið, höldum þó eftir nokkrum pinklum, eilitlum menningarlegum farangri eða lögvernduðum listaverkum. Af þeim getum við séð hvar við vorum stödd.

Tíminn eyðir öllu. Eftilvill eiga menjar mannsandans, sönnunargögn sannleikans, listaverkin, sér þó mestar lífslíkur.

Sigurður Guðmundsson
nóvember 1969
Fyrirlestur fluttur í Norræna húsinu, Reykjavík

Ágrip

Björk Guðnadóttir (IS)

Björk Guðnadóttir (f. 1969) leitar víða fanga í listsköpun sinni og til þess notar hún ýmiskonar efnivið eins og léreft, ullargarn, plast, gifs og vax.

Björk hefur haldið einkasýningar og verið valin til þess að taka þátt í mörgum samsýningum, bæði hér á landi og erlendis. Hún hefur hlotið fjölmarga styrki og verk eftir hana eru í eigu listasafna og safnara. Björk er meðlimur í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík og Nýlistasafninu.

Borgar Magnason (IS)

Borgar Magnason er kontrabassaleikari og tónskáld, hann gerir gjarnan hljóðheim við hið sjónræna, þ.m.t. myndlistarverk; er nátengdur sjónrænni túlkun og hefur löngum unnið úr myndlist í verkum sínum.

Guðlaug Mía Eyþórsdóttir (IS)

Guðlaug Mía Eyþórsdóttir (f.1988) útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og stundaði síðar meistarnám í myndlist við Koninklijke Academie í Gent, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018.

Í myndlist sinni skoðar Guðlaug skúlptúríska þætti í manngerðu umhverfi okkar, gaumgæfir þau form, áferðir og gjörðir sem nærumhverfi okkar samanstanda af og kannar hvort efnisgera megi daglegar athafnir. 

Gunnhildur Hauksdóttir (IS)

Gunnhildur Hauksdóttir (f. 1972) hlaut MFA frá Sandberg Institute í Amsterdam, Hollandi árið 2006 og BFA Listaháskóla Íslands árið 2002. Gunnhildur sat í stjórn Nýlistasafnsins í Reykjavík árin 2010 – 2015 og var formaður stjórnar og safnstjóri 2011 – 2014. Hún situr í varastjórn Skaftfells miðstöð myndlistar á Seyðisfirði. Hún er stundakennari við Listaháskóla Íslands og hefur haldið námskeið þar og víðar. Hún er leiðbeinandi hjá UNM (Ung Nordisk Musik) og þáttakandi í Between the Sky and the Sea, Temporal Horizons sem PAB (Performance Art Bergen) heldur árið 2022. Verk hennar er að finna í safneignum Listasafns Íslands og Nýlistasafninu í Reykjavík. Í safneign Uppsala Konstmuseum og Goethe Institute í Kaupmannahöfn og Hess Gallery, safneign Háskólans í Lethbridge í Kanada. Verk hennar hafa verið flutt og tekin til sýninga víða á ferli hennar. Hún tók m.a. þátt í  Silver Lining, Collateral Event á 56. Feneyjatvíæringnum árið 2015. Hún hefur sýnt í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Galleria Municipal do Porto í Portúgal, í Kunstmuseum Liechtenstein, Uppsala Konstmuseum og  í 21 Haus hjá Belvedere Museum í Vín.

Gunnhildur hefur sterk tengsl við Seyðisfjörð og hefur búið þar af og til síðan hún hóf feril sinn. Hún býr og starfar við myndlist í Reykjavík og Berlín.

Menntaskóla í Tónlist (IS)

Nemendur úr Menntaskóla í Tónlist, koma fram og túlka í tónum og hljóðum verk Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur, Tilbrigði, sem sýnt er á sýningunni / SKÖPUN / EYÐING / í Nýlistasafninu. 

Nemendur í 6. bekk í Fellaskóla (IS)

Nemendur úr 6. bekk í Fellaskóla hafa á haustdögum, undir umsjón Gretu S. Guðmundsdóttur, myndlistarkonu og kennara, kynnt sér hina umfangsmiklu safneign Nýlistasafnsins, sem staðsett er í næsta nágrenni skólans við Völvufell. Hafa þeir verið að kynna sér safneignina með það fyrir augum að velja úr verk til sýningar í sýningarrými Nýlistasafnsins í Marshallhúsinu. Nemendurnir taka að sér hlutverk sýningarstjóra og hafa frjálsar hendur með val verkanna og bera þeir á borð þau verk sem vakið hafa áhuga þeirra og hylli. Er sýning þeirra á verkum safneignar Nýlistasafnsins jafnframt hluti af sýningu Sequences í Marshallhúsinu.

Sýningarstjórar eru:  Aleksandrs Romanuks, Amelía Ösp Hagalín, Fábio Mikael Ferreira, Katla M. Svarfdal Ágústsdóttir, Katrín Snædís Konecna, Layla Judith Nagua Chasi, Lena Björk Pudo, Majka Drzyzga, Rúnar Þór Styrmisson, Sandra Wrzosek og Suvam Bahadur Chhetri.


Sýningarstjóri

Þóranna Dögg Björnsdóttir, Þráinn Hjálmarsson