05.06—09.08.2026
Open Group
Óður til gleðinnar

Sýningin Óður til gleðinnar eftir listamanna hópinn Open Group (Yuriy Biley, Pavlo Kovachog, Anton Varga) byggir á benni reynslu þeirra af stríðinu í Úkraínu. Ásamt undirliggjandi spurningum um samtíma samfélag – mörk þess, skilyrði og grundvallar forsendur. Titill sýningarinnar vísar til níundu sinfóníu Beethoven sem einnig er þekkt sem Evrópusöngurinn og verður ákveðinn útgangspunktur á sýningunni. Á sama tíma og honum er ætlað að vera tákn um frið og samstöðu í Evrópu, heldur Úkraína áfram að berjast fyrir sjálfstæði sínu. Mishljómur þessi er ekki aðeins pólitísk staðreynd; heldur upplifuð reynsla sem gegnsýrir listrænt ferli listamannanna og afhjúpar þá óneitanlegu togstreitu sem felst í Evrópuverkefninu. Það er einmitt innan þessarar spennu sem Open Group starfar. Með því að gera samstarf að þungamiðju í því starfi skapa listamennirnir verk sem byggja á samvinnu við fólk með fjölbreyttan bakgrunn, framkvæmd í sérstöku samhengi og á tilteknum tíma. Verk þeirra taka oft á sig mynd „opinna aðstæðna“ – tilraunakenndra uppsetninga þar sem fólk og rými mætast og merking verður til í gegnum þátttökuferlið. Þar sem samfélagið birtist hvorki sem sjálfsagt eða fastmótað fyrirbæri heldur sem samband sem þarf stöðugt að semja um.
Sýningarstjóri
Marta Czyż

