20.03—19.04.2026
Ben Frost, Francesco Fabris
Óróapúls

Óróapúls sprettur út frá margra ára vettvangsrannsókn þeirra Ben Frost og Francesco Fabris á þeim margbrotnu umbreytingum sem áttu sér stað á Reykjanesskaga, í kjölfar eldsumbrota á svæðinu á árunum 2021-2023. Verkið nálgast jörðina sem hljóðuppsrettu, þar sem landslag er ekki túlkað sem kyrrstæður hlutur, heldur atburðarás í óþrjótandi flæði. Listamennirnir notast við fjölbreytilegar aðferðir til að skrásetja þessar jarðhræringar; upptökur af eldsprengingum og skarkala skráðum á segulband, sveiflumælitæki nema dýpstu bylgjur, og snertihljóðnemar lagðir ofan á heita skorpuna magna upp viðkvæmustu bresti. Hljóðið ferðast um hringóma hátalarakerfi og umbreytir salnum í rými þar sem land mótast og eyðist í sífellu. Þannig framkallar verkið hálfgerða tímaleysu, hljóðið ber með sér minningar og kraftmikla endurnýjun: Skrásetning á fortíðinni lifnar við og vekur jarðlögin á ný.
Ágrip
BEN FROST er ástralskt/íslenskt tónskáld, hljóðlistamaður og sviðsstjóri sem fæddist í Melbourne, Ástralíu. Verk hans spanna stúdíó upptökur, lifandi flutning, insetningar og skarast oft á við dans, leikhús og kvikmyndir.
Þekktustu plötur Frost eru meðal annars Aurora (2014), The Centre Cannot Hold (2017) og Scope Neglect (2024). Hann hefur einnig samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarp, þar á meðal Sleeping Beauty (leikstjórn: Julia Leigh), Palestine 36 (leikstjórn: Annemarie Jacir), Raised By Wolves (leikstjórn: Ridley Scott), 1899, Die My Love (leikstjórn: Lynne Ramsay) og kult-þáttaröðina Dark.
Árið 2011 valdi Brian Eno Frost sem samstarfsmann (protégé) sem hluta af verkefninu Rolex Arts Initiative. Áratugalangt samstarf hans við listamanninn Richard Mosse hefur leitt til þriggja margverðlaunaðra fjölrása myndbandsinnsetninga: The Enclave (2013), Incoming (2017) og Broken Spectre (2022), sem hafa verið sýndar á söfnum og listahátíðum víða um heim.
Frost hefur skrifað og leikstýrt tveimur óperum: The Wasp Factory (2013), byggðri á skáldsögu eftir Iain Banks, og The Murder of Halit Yozgat (2021), sem var þróuð í samstarfi við rannsóknarhópinn Forensic Architecture í London. Nýjustu verk hans beinast í auknum mæli að stórum hljóðinnsetningum og skúlptúrlegum umbreytingum á hljóðkerfum. Vistfræðilegur og pólitískur raunveruleiki liggur oft til grundvallar verkum Frosts, þótt áhrif þeirra séu beinskeyttari: hljóð sem beinn, líkamlegur miðill.
Francesco Fabris er þverfaglegur listamaður, tónskáld og tónlistarmaður frá ítalíu, búsettur í Reykjavík. Hann vinnur með lifandi rafeindatækni, hljóð- og myndflutning, margmiðlunarinnsetningar og upptökuframleiðslu.
Í verkum sínum kannar hann hvernig hægt er að þýða náttúrulegt umhverfi yfir í abstrakt hljóð- og myndmál. Þar sameinar hann stafræna og vélræna ferla í rannsókn sinni á hljóðvist vistkerfa, hljóðeðlisfræði, vettvangsupptökum, rýmisvæðingu hljóðs og hljóðvæðingu gagna, og skoðar spennuna milli víðfeðmra vistkerfa og viðkvæmra, örsmárra ferla.
Tónlist hans hefur komið út hjá útgáfum á borð við Bedroom Community, Room40, INNI og Until Riots. Verk hans spanna jafnframt kvikmyndir, sjónvarp, leikhús og óperu. Þar má meðal annars nefna þátttöku í tónlistinni við All Quiet on the Western Front, sem hlaut bæði Óskars- og BAFTA-verðlaun, auk verkefna á borð við DARK, Conclave og Dune: Prophecy.
Í myndlistarsamhengi hefur hann samið tónlist og hljóðhannað fjölrása kvikmyndir eftir Ailbhe Ní Bhriain og Sebastián Montalvo Gray, auk þess að skapa innsetningar á borð við Stellar, Stored Void og PETRA.
Hann er hluti af Greenhouse Studios í Reykjavík og hefur unnið með listamönnum á borð við Jónsa, Swans, Lawrence English, Alex Somers, Dustin O’Halloran, Volker Bertelmann, Valgeir Sigurðsson, Atla Örvarsson, 404.zero og fleiri. Francesco er stofnandi margmiðlunarvettvangsins Outer Fields og fulltrúi fyrir Quiet Park International á Íslandi.
Sýningarstjóri
Þorsteinn Eyfjörð

