05.06—09.08.2026

Sýningar

Open Group

Óður til gleðinnar

Sýningin Óður til gleðinnar eftir listamanna hópinn Open Group (Yuriy Biley, Pavlo Kovachog, Anton Varga) byggir á benni reynslu þeirra af stríðinu í Úkraínu. Ásamt undirliggjandi spurningum um samtíma samfélag – mörk þess, skilyrði og grundvallar forsendur. Titill sýningarinnar vísar til níundu sinfóníu Beethoven sem einnig er þekkt sem Evrópusöngurinn og verður ákveðinn útgangspunktur á sýningunni. Á sama tíma og honum er ætlað að vera tákn um frið og samstöðu í Evrópu, heldur Úkraína áfram að berjast fyrir sjálfstæði sínu. Mishljómur þessi er ekki aðeins pólitísk staðreynd; heldur upplifuð reynsla sem gegnsýrir listrænt ferli listamannanna og afhjúpar þá óneitanlegu togstreitu sem felst í Evrópuverkefninu. Það er einmitt innan þessarar spennu sem Open Group starfar. Með því að gera samstarf að þungamiðju í því starfi skapa listamennirnir verk sem byggja á samvinnu við fólk með fjölbreyttan bakgrunn, framkvæmd í sérstöku samhengi og á tilteknum tíma. Verk þeirra taka oft á sig mynd „opinna aðstæðna“ – tilraunakenndra uppsetninga þar sem fólk og rými mætast og merking verður til í gegnum þátttökuferlið. Þar sem samfélagið birtist hvorki sem sjálfsagt eða fastmótað fyrirbæri heldur sem samband sem þarf stöðugt að semja um.

Ágrip

Open Group var stofnað í ágúst árið 2012 í Lviv af sex úkraínskum listamönnum. Núverandi meðlimir hópsins eru Yuriy Biley (f. 1988), Pavlo Kovach (f. 1987) og Anton Varga (f. 1989). Starfsemi hópsins byggist á samvinnu þvert á greinar, þar sem einstaklingar úr ólíkum áttum taka þátt í tímabundnum samstarfsverkefnum. Verk þeirra beinast að því að rannsaka tengsl fólks við rými og aðstæður sem mótast af samhengi, með það að markmiði að skapa það sem þau kalla „opnar aðstæður“. Hópurinn hefur sýnt víða um heiminn og vakið mikla athygli fyrir sýningar sínar, meðal annars fyrir framlag sitt í Pólska skálanum á Feneyjatvíæringnum 2024.


Sýningarstjóri

Marta Czyż