16.10—21.11.2021
Anna Líndal, Auður Lóa Guðnadóttir & Starkaður Sigurðarson, Daði Guðbjörnsson, Daníel Magnússon, Hannes Lárusson, Kristín Helga Ríkharðsdóttir, Magnús v. Guðlaugsson, Peter Angermann, Pétur Magnússon, Unndór Egill Jónsson
Lifandi safneign: Nemendur úr Fellaskóla

Nemendur úr 6. bekk í Fellaskóla hafa, undir umsjón Grétu S. Guðmundsdóttur, myndlistarmanni og kennara, kynnt sér hina umfangsmiklu safneign Nýlistasafnsins, sem staðsett er í næsta nágrenni skólans við Völvufell. Hafa nemendur kynnt sér safneignina með það fyrir augum að velja úr verk til sýningar í sýningarrými Nýlistasafnsins í Marshallhúsinu. Nemendur taka að sér hlutverk sýningarstjóra og hafa frjálsar hendur með val verkanna og ber aþeir á borð þau verk sem hafa vakið áhuga þeirra og hylli.
Sýningarstjóri
Nemendur úr 6. bekk í Fellaskóla

