13.05—04.06.2023
Deepa R. Iyengar, Íris María Leifsdóttir, Júlíanna Ósk Hafberg, Jóhanna Margrétardóttir, Sarah Finkle, Solveig Pálsdóttir, Thora Karlsdóttir
Athöfn – útskriftarsýning MA nema í myndlist
![](https://images.prismic.io/nylistasafnid/b2fa320b-fa4d-44a5-9ab0-c4500cff8d6b_Lhi_Utskrift_2023_Instagram_Feed_MA_Syning_Myndlist_03.png?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1080%2C1080&w=1000&h=1000)
Útskriftarsýning meistaranema í Myndlist frá Listaháskóla Íslands ber titilinn Athöfn. Í gegnum eigin viðfangsefni leitast útskriftarhópurinn við að þoka mörkunum örlítið lengra: mörkum hegðunar, persónulegs rýmis, reynslu og tilfinninga. Mörkum umhyggju, skipaðra hlutverka og samvistar manns og náttúru. Mörkum þess hversu langt við getum hugsað út fyrir tímann og inn í okkur sjálf. Listamennirnir sækja í þræði frá nýlegum einkasýningum sem taka á sig ný form í öðru samhengi.
Sýningarstjóri
Sunna Ástþórsdóttir