16.10.2026

Fréttir

Lou Tromp, starfsnemi í Nýlistasafninu ræddi við Ívar Glóa Gunnarsson Breiðfjörð um sýningu hans Svaf allan daginn.

Ímyndaðu þér fisk sem liggur í sófa í fiskistærð. Hann virðist undarlega heimakominn þar og virðist hafa samlagast hlutnum: venjulegu húsgagni, smækkuðu til að rúma þetta lagardýr. Dveljið við myndina örlítið lengur og hún fer að liðast í sundur. Hvað er fiskur að gera í sófa? Yrði hann ekki slímugur? Lyktar hann illa? Væri það ekki ógeðslegt?

Á sýningunni Svaf allan daginn leikur Ívar Glói Gunnarsson Breiðfjörð sér að þeim forsendum sem við göngum út frá þegar við horfum á það sem fyrir augu ber. Sýningarrýmið virðist skapa fiskinum stað þar sem hann á heima svo að þessi fjarstæðukennda mynd virðist fullkomlega eðlileg. Utan þessa meðvitað mótaða rýmis myndi fiskskúlptúrinn ef til vill virka býsna framandi og á skjön við umhverfi sitt. Sýningin skilur gestinn eftir með fleiri spurningar en svör, en Ívar Glói gefur í skyn að svörin kunni þegar að vera til staðar. „Allar vísbendingarnar eru þarna, maður þarf bara að leita að þeim,“ segir hann.

Fólk hefur lýst sýningunni sem fallegri, sem kemur listamanninum á óvart. Fegurð var ekki það sem hann hafði í huga þegar hann vann verkin. Eitt dæmi er verkið Vögguvísa, svartar sviðströppur úr krossviði af þeirri gerð sem notuð er í leikhúsum.  Ívar Glói hefur sjálfur unnið við að taka niður tónleikauppsetningar og þekkir því vel hluti af þessu tagi, sem eru hannaðir með notagildi í huga fremur en útlit. Þeim er ekki ætlað að sjást af neinum nema fólkinu á sviðinu. Á sýningunni eru tröppurnar hins vegar tandurhreinar og ósnertar til sýnis í rými sem nýtur mikillar náttúrulegrar birtu. Litlar stjörnur hafa verið málaðar á þær með sjálflýsandi málningu. Þannig breytist „ljótur baksviðsgripur“ í áberandi og óvænt skrautlegan hlut sem erfitt er að líta fram hjá. „Ég hélt að þær yrðu andfagurfræðilegar,“ segir hann. Útkoman varð þvert á móti.

Stjörnur eru áberandi stef í gegnum alla sýninguna. Þær eru kunnuglegt tákn leikhúss og sjónarspils og birtast jafnt í Hollywood og kvikmyndum sem á leiksviðinu. Í þeim skilningi verða þær enn ein tegund leikrænna tilburða, ef til vill líka lítil vísun í ákveðnar framhliðar (façades) sem birtast víða á sýningunni. En stjörnur tilheyra líka allt öðru umhverfi: svefnherberginu. Ívar Glói líkir þeim við sjálflýsandi stjörnur sem barn horfir á þegar það liggur andvaka í rúminu. Þær eru ætlaðar til að sefa hugann og svæfa barnið.

Í Svaf allan daginn er þessari mynd hins vegar snúið á haus. Áhorfandinn stendur eftir í fullupplýstu rými með smíðaðri útgáfu af næturhimni. „Þetta er andstæðan við að vera krakki og liggja uppi í rúmi,“ segir Ívar Glói. Það sem alla jafna gæti veitt huggun verður hér að eins konar frontur: næturhiminn sem er augljóslega manngerður og sviðsettur, án þess þó að verða að sjónarspili. Ekkert myrkur, engin stórfengleg áhrif. Aðeins stór, hvítur veggur og nokkrar litlar stjörnur. Og þó: „Fólk elskar stjörnurnar.“

Ívar Glói hefur áhugavert viðhorf til þess að verk hans séu talin falleg eða fagurfræðileg. Í verkunum sem sýnd eru á Svaf allan daginn var það aldrei beinlínis ætlunin að skapa fagurfræðilega upplifun. Í Að næturlagi eru stórir, hvítir veggir rofnir af litlum stjörnum sem hleypa dagsbirtu inn frá gluggunum sem veggirnir byrgja annars sýn á. Ívar Glói bjóst við að áhrifin yrðu fremur lítil og jafnvel vonbrigði. Veggirnir eru stórir en stjörnurnar hafa aðeins örlítil áhrif, sem hefðu ef til vill komið betur til skila í myrkri. En í björtu, hvítu sýningarrýminu verður verkið að einhverju öðru. Áhorfendur virðast ómeðvitað ljá hinum hvíta sýningarkassa rómantískan blæ og þar með stjörnunum líka.

Það athyglisverða er að þetta virðist endurtaka sig, óháð ásetningnum að baki verkunum. Í útskriftarverkefni sínu við LUCA School of Arts í Brussel árið 2023 smíðaði Ívar Glói fáguð borð með yfirbragði fyrirtækjahúsgagna og paraði þau við gamla hamra sem hann hafði fengið á flóamarkaði. Hann pússaði hamrana og fjarlægði ummerki um slit og notkun sem báru vitni um fyrra líf þeirra, þar til þeir féllu að hreinni og fágaðri ásýnd borðanna. Hlutur sem áður hafði tilheyrt verkafólki varð þannig að fáguðum, næstum því blætisgerðum grip í galleríi.

Ívar Glói lýsir þessu sem tilraun til að „afmá mögulega forsögu þeirra sem áttu hamrana áður“. Saga hlutar getur horfið þegar hann er settur í nýtt samhengi. Hamarinn hættir að vera verkfæri sem einhver hefur notað og verður þess í stað fagurfræðilegur hlutur. Áhorfandanum er falið að púsla saman því sem eftir stendur og leita að vísbendingum sem gætu skýrt hlutverk hans í verkinu. Eins og Ívar Glói lýsir því verður það að eins konar leik að reyna að ráða í listaverk og átta sig á merkingu einstakra smáatriða.

Hugmyndin um að hlutir öðlist nýjan ímynd tengist víðtækari áhuga Ívars Glóa á tilbúnum eða skálduðum veruleika: því hvernig stöðum og hlutum er gefin ákveðin mynd af fortíð sinni sem virðist sannfærandi, jafnvel þótt hún sé ekki fyllilega rétt. Í augum Ívars Glóa er þetta ekki endilega vandamál. Hann heldur því ekki fram að staðir eigi að varðveita sögulegt útlit sitt óbreytt. Borg getur ekki einfaldlega staðnað í fortíðinni; lífshættir breytast, byggingar rísa og fólk nýtir efni og aðföng með öðrum hætti en áður. Það sem vekur áhuga hans er lögin sem verða til í þessu ferli: fagurfræði sem smám saman tekur að gegna hlutverki sögunnar sem undir liggur, jafnvel þótt hún segi ekki alla söguna.

Ívar Glói stundaði nám við Listaháskóla Íslands (2011–2014) áður en hann lauk framhaldsnámi við LUCA School of Arts í Brussel (2021–2023) og hefur því kynnst tveimur afar ólíkum listasenum. Hann lýsir listasenunni í Brussel sem hófstilltari, þar sem sýningum er  oft miðlað á dulráðnari hátt. Í samanburði við Ísland, þar sem arfleifð listamanna á borð við Dieter Roth og SÚM-hópsins átti þátt í að móta hugmyndafræðilegri og mínímalískari nálgun, getur senan í Brussel virst, með hans eigin orðum, „þurr“.

Þennan mun má greina í því hvernig Svaf allan daginn gæti verið tekið á hvorum stað fyrir sig. Hér á Íslandi hefur sýningin vakið athygli fyrir ferskleika sinn og jafnvel sérkennilegan blæ. Sú tegund listasenu sem Ívar Glói kynntist í Brussel á sér ekki alveg hliðstæðu hér á landi, þótt hann bendi á að íslenskir listamenn séu vissulega til sem myndu falla vel að listasenunni þar. Það virðist einmitt vera í samspili þessara tveggja nálgana við framsetningu myndlistar sem sérstaða Svaf allan daginn felst. Sýningin gefur áhorfandanum vísbendingar en segir sjaldnast berum orðum hvernig eigi að túlka þær. Hversu mikla leiðsögn þarf áhorfandinn og hvenær verður skortur á henni hluti af upplifuninni? Því er ósvarað. Sýningin lætur þess í stað gestinum eftir að leita að vísbendingunum, tengja þær saman og draga sínar eigin ályktanir.

Myndir: Lou Tromp og Sisters Lumiére