19.05.2025

Fréttir

Kæru fulltrúar!

Við minnum á ársfund Nýlistasafnsins á morgun, 20. maí kl. 17:00. Fundurinn fer fram í húsakynnum safnsins Marshallhúsinu, Grandagarði 20, 101 Reykjavík. Boðið verður upp á léttar veitingar. ATH að fundurinn fer að mestu fram á íslensku.

Fundardagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningur 2024
  3. Nýir fulltrúar taldir upp
  4. Kynning frambjóðenda
  5. Kjör stjórnar – kosið er um sæti formanns, fjögur sæti aðalstjórnar og þrjú sæti varastjórnar.

(Hlé - talning atkvæða)

  1. Fjárhagsáætlun kynnt og árgjald 2026 ákveðið
  2. Niðurstöður kosninga kunngjörðar
  3. Önnur mál

Formanns- og stjórnarkosning

  • Kosið verður um öll sæti stjórnar og varastjórnar: Formann til eins árs, fjögur sæti í aðalstjórn til tveggja ára og þrjú sæti í varastjórn til eins árs. 
  • Þeir fulltrúar hafa atkvæðisrétt sem greitt hafa ársgjöld fyrir árið 2025. Árgjald safnsins er  4300 kr. og var sent í heimabanka, einnig verður hægt að greiða gjaldið á fundinum.
  • Tveir aðrir fulltrúar munu taka að sér talningu á atkvæðum.
  • Allir talninga- og trúnaðarmenn verða borninr upp til samþykktar á fundinum.
  • Ef tveir frambjóðendur eða fleiri frambjóðendur hljóta jafnmörg atkvæði skal kosið aftur og þá aðeins á milli þeirra frambjóðenda.
  • Kosningu hljóta þeir frambjóðendur sem fá flest atkvæði.

Símakosning

  • Þeir meðlimir sem vilja greiða atkvæði en geta af einhverjum ástæðum ekki mætt á fundinn geta kosið símleiðis. Þau hin sömu eru beðin um að senda símanúmer og nafn á nylo(hjá)nylo.is fyrir klukkan 14:00 20. maí.
  • Hringingar hefjast klukkan 17:00 eða í upphafi fundar. Tveir aðilar úr röðum fulltrúa taka að sér trúnaðarmennsku, hringja út og skrá niður atkvæði úr símakosningu.

Fulltrúum gefst enn tækifæri á að gefa kost á sér í stjórnarsetu, annað hvort með því að senda línu á nylo(hjá)nylo.is eða á fundinum sjálfum.

Hér fyrir neðan má lesa nánar um þau framboð sem hafa nú þegar borist skrifstofu.

Formaður (1 sæti):

Heiðar Kári Rannversson

„Ég fór að venja komur mínar í Nýlistasafnið 2008 þegar safnið var á Laugarvegi 26 og heillaðist. Nýló er rými ólíkt öðrum menningarstofnunum. Hér er opinn aðgangur að listinni; eftirminnilegar sýningar, safneign sem hægt er að grúska í og ekki síst listafólk sem langar að eiga samtal. Þessi upplifun sáði fræi í huganum sem enn spírar.

Í framhaldi gerðist ég fulltrúi og vann seinna viðamikið rannsóknar- og sýningarverkefni fyrir safnið um arfleið gallerís Suðurgötu 7. Úr varð bók og sýning, S7 - Suðurgata >> Árbær (ekki á leið), samvinnuverkefni með Borgarsögusafni Reykjavíkur og Listahátíð í Reykjavík 2014. Árið eftir var ég kosinn í varastjórn og sat til 2017 (fyrsta ár safnsins í Marshallhúsinu) en það ár var ég líka í hlutastarfi hjá Nýló um nokkurra mánaða skeið. Um leið vann ég sýningu í tveimur hlutum, YFIRLESTUR – myndlist í bókaformi, í safneignarrýminu í Breiðholti. 

Ég öðlaðist mikilvæga þekkingu á innra og ytra starfi safnsins við þessa vinnu, á safneigninni og sögunni. Nýlistasafnið hefur haft afgerandi áhrif á starf mitt sem listfræðingur og sýningarstjóri, um leið og ég hef fengið að setja mark mitt á safnið. En það er einmitt kjarni starfseminnar: Safn sem byggir á opnu samtali, samstarfi sem ávallt er með myndlistina í fyrirrúmi. 

Nýló hefur leitast við að sinna því tómarúmi sem verður til á sviði myndlistar á hverjum tíma og fyllt það frjóum hugmyndum: Hvort sem það er að búa til sýningastað fyrir nýja kynslóð og óhefðbundna miðla, safna framsækinni myndlist eða skapa vettvang fyrir samtal og alþjóðlegt samstarf. Árið 2028 mun safnið fagna 50 ára starfsafmæli og verður þá búið að vera meira en 10 ár í Marshallhúsinu. 

Ég vil setja alla mína krafta í að gera Nýlistasafnið að lifandi vettvangi listarinnar. Með framboðinu vil ég hefja samtal um áherslur í starfsemi Nýló; hvernig við fyllum út í tómið, sköpum frjóan jarðveg og leyfum safninu að vaxa og dafna næstu árin.

RÍFUM NIÐUR VEGGINN Á MILLI SKRIFSTOFU OG SÝNINGARÝMIS!

Samtalið kemur fyrst. Sköpum vettvang fyrir samstarf, brúum bil á milli kynslóða og bjóðum nýtt listafólk velkomið. Virkjum fulltrúa og nýtum okkur þekkingu þeirra og reynslu.

BREYTUM SÝNINGARÝMINU EF ÞESS ÞARF, MYNDLISTIN RÆÐUR FÖR!

Sýningar eru spegilmynd safnsins. Setjum metnað í sýningadagskrá, kynnum alþjóðlega myndlist til jafns við innlenda og sköpum tengsl á milli stofnanna og listafólks út fyrir landsteinana. 

GERUM SAFNEIGN OG ARKÍF AÐGENGILEGRI!

Safneignin er grunnurinn. Ræðum framtíð safneignar af fullri alvöru. Leitum lausna til að varðveita 50 ára menningararf án þess að hann sé á bak við lokaðar dyr.“

Heiðar Kári Rannversson er listfræðingur og sýningarstjóri, deildarstjóri við Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn 2018-22, og verkefnastjóri fræðslu og viðburða á Listasafni Reykjavíkur 2013-16. Hann er stundakennari við Listaháskóla Íslands (frá 2015) og hefur sinnt kennslu við Myndlistaskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands.

Sem sjálfstætt starfandi sýningarstjóri hefur Heiðar unnið fyrir Listasafnið á Akureyri, Listasafn Íslands, Hafnarborg, Gerðarsafn, Myndhöggvarafélagið í Reykjavík og Myndlistarmiðstöð. Hér má nefna sýningar eins og: Outside looking in, inside looking out, samstarfsverkefni Myndlistarmiðstöðvar og sendiskrifstofa Íslands (New York, Amsterdam, Helsinki, Osló, París og Tokýó, 2023-25); Hjartadrottning – Sóley Ragnarsdóttur (Gerðarsafn og Augustiana, Danmörku, 2024); Tölur, staðir –  Þór Vigfússon (Gerðarsafn og Y Gallery, 2024); Diskótek (Hafnarborg, 2021); HIGH & LOW – Contemporary art from Iceland (Nordatlantens Brygge, 2018); FALLVELTI HEIMSINS – fyrsti áfangi í útilistaverka-sýningaröðinni HJÓLIÐ (Myndhöggvarafélagið og Listahátíð í Reykjavík, 2018); NORMIÐ ER NÝ FRAMÚRSTEFNA (Gerðarsafn, 2017); D24: ÁVÖXTUN % (Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, 2016) og Geimþrá (Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn, 2015).

Hann hefur einnig gegnt ýmsum trúnaðarstörfum; sat í stjórn Listasafns ASÍ 2017-21, var formaður Listfræðafélags Íslands 2023-24 þar sem hann var skipaður í starfshóp á vegum menntamálaráðuneytisins um framtíðarsýn Listasafns Íslands. Þá situr hann í innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur 2023-25.

Heiðar Kári stundaði nám í Arkitektúr við Konunglegu Akademíuna í Kaupmannahöfn, hlaut BA próf í listfræði við Háskóla Íslands og lauk MA prófi í listrannsóknum frá Háskólanum í Amsterdam 2012.

Helena Solveigar Aðalsteinsbur (hán/háns)

Þó að ég hafi síðastliðinn áratug unnið við sýningarstjórn í stofnunum víðsvegar um Evrópu, þá á hjarta mitt alltaf heima í grasrótarstarfi og listamannastýrðri menningu. Grasrótarlistastarf er minn heimavöllur. Þar byrjaði ég sem listamaður og síðar sýningarstjóri, og það hefur mótað sýn mína á hlutverk listar í samfélaginu.

Reynslan af því að vinna í stórum stofnunum hefur fært mér dýrmæt verkfæri: styrktarumsóknargerð, fjáröflun og almenn verkefnastjórnun, auk þess hef ég á feril mínum myndað víðtækt alþjóðlegt tengslanet um víðan völl. Þar mætti nefna þá helst í Senegal, Finnlandi, Japan, Bretlandi, Eþíópíu og Hollandi. En það sem knýr mig áfram, í grunninn, er samfélagið mitt í Reykjavík, tilraunastarfsemin og samvinnan sem eru þar að finna ólíkt allstaðar annarstaðar. Nýló er hjarta framúrsækinnar listar á Íslandi, og ég er spennt að styðja safnið í því að blómstra sem leiðandi vettvang í myndlist á Íslandi á þann hátt!

Í Amsterdam og London stofnaði ég og stýrði listamannareknu rými, samhliða því að sýningarstýra á stofnunum eins og í Camden Art Centre, Southbank Centre og Hayward Gallery. Þar hef ég unnið með listafólki á borð við Ai Weiwei, Sophia Al-Maria, Jeremy Deller og Palestinian Sound Archive, og stutt við metnaðarfull, pólitískt drifin og nýstárleg verkefni.

Meðfram verkefnum erlendis, hef ég alltaf haft fótfestu í íslensku listasamfélagi. Ég var nýverið framkvæmdastjóri LungA listahátíðarinnar, meðstofnandi Laumulistasamsteypunnar, og hef unnið að verkefnum með Kling & Bang og Gerðarsafni. Með Laumulistasamsteypunni héldum við einu sinni sýningu í Nýló sem var ein stór Kaffipása og innsetning, og það er draumur minn að sjá anddyri Nýló verða lifandi, skapandi rými þar sem kaffi er á könnunni, samtöl flæða og snöggsprottnar sýningar eru haldnar, með áframhaldandi starfsemi í limbó. Alvöru félagsmiðstöð listamanna!

Nýló ætti að vera djarfasta, kraftmesta og framsæknasta sýningarrými landsins. Staður þar sem nýjar hreyfingar fæðast, vaxa og dafna, þar sem skapandi áhættusækni er haldin í fyrirrúmi, og þar sem bæði upprennandi og rótgróið listafólk fær rými til að ögra ríkjandi normum í sameiningu. Mig langar að vinna þétt með metnaðarfullum sýningarstjórum, styðja grasrótarverkefni og bjóða erlendu listafólki í dýrmæt samskipti við íslensku senuna.

Safnið á að vera lifandi! Ég ímynda mér stærri bókabúð, regluleg súpukvöld, árlega gjörningahátíð, og kvikmyndasýningar með videolist hvaðanæva úr heiminum. Leshópurinn er frábær grunnur og mig langar að byggja ofan á hann og skapa opið og lifandi rými þar sem skapandi jaðarhópar og listastefnur hafa verið mótaðar svo áratugum skipti og virkað sem félagsmiðstöð fyrir listamenn á öllum aldri.

Sýningar í fortíðinni sem mér finnst hafa verið áhrifamiklar og mótað mig eru t.d. GRASRÓT sýningarseríurnar sem höfðu djúpstæð áhrif á mig sem upprennandi listamaður. Í framtíðinni vil ég sjá metnaðarfullar sýningar sem draga fram styrkleika Nýlistasafnsins sem vettvang fyrir lifandi listform.Ein af uppáhalds sögunum mínum af Nýló er frá í mars 1981, þar sem birtist í Dagblaðinu skoðun frá sjómönnum um gjörningadagskrá Nýlistasafnsins. Þar kom fram að „öll met í fíflaskap og afkárahætti [væru] slegin” og skiptar skoðanir voru á því hvort mætti kalla það list að sjóða vatn í katli. „Eins og fyrr er skrifað virðum við rétt fólks til þess að haga sér eins og fífl og kalla það hvað sem það vill: merkilegt tjáningarform, nýlist eða gerninga”. Tilraunakennd myndlist kemur umræðunni í gang og ég tek henni fagnandi!

Með þessum hætti vil ég vinna að því að Nýlistasafnið verði áfram skapandi og krefjandi vettvangur þar sem listamenn eru í miðju alls, með nýrri, lifandi orku, smá prakkaraskap og mikilli ást! 

Með mikilli tilhlökkun,

Helena Solveigar Aðalsteinsbur

Odda Júlía Snorradóttir (hún)

Ég býð mig glöð fram til formanns stjórnar Nýlistasafnsins, með hagsmuni myndlistarinnar og listamanna að leiðarljósi! Nýlistasafnið gegnir mikilvægu hlutverki og veitir nauðsynlega næringu í framvindu og þróun myndlistar á landinu. Upprunalegt markmið Nýló, um að safna og sýna það sem ekki fær pláss annars staðar, á enn fullt erindi. Það er hlutverk okkar að vera vel vakandi og fylgjast með því sem er að gerast bæði hér á landi og alþjóðlega. Nýló er lifandi og opið samtal við umheiminn!

Ég kem með mikla ástríðu og reynslu að borði. Ég er með BA í listfræði og MA í sýningargerð frá HÍ. Ég hef stýrt og tekið þátt í sýningum og verkefnum bæði hér- og erlendis, þar á meðal í Nýló, Hafnarborg, Norræna húsinu, Eistlandi og Rúmeníu. Ég er einn stofnanda Íslenska Teiknisetursins. Ég hef góða reynslu af alþjóðlegu samstarfi í gegnum störf mín sem framkvæmdarstjóri Sequences og hjá Nýló, og sem sjálfstætt starfandi sýningarstjóri. Ég hef unnið innan allra deilda safnsins, fyrst sem safneignarfulltrúi, síðan framkvæmdarstjóri og nú sem safnstjóri. Ég þekki því innra flæði Nýló, rekstur, alla helstu ferla og hindranir. Þessi reynsla veitir mér einstaka innsýn í hvar Nýló hefur færi á að dafna frekar. Nú vil ég láta til mín taka og hafa mótandi áhrif á stefnur safnsins:

Opið og virkt samtal:

Fulltrúar safnsins eru kjarni Nýló. Í þessu einstaka samfélagi mætast kynslóðir, miðlar, áhuga- og sérsvið. Saman myndum við víðamikið net innan listheimsins sem gerir okkur kleift að grípa bæði spennandi nýja strauma og það sem á í hættu að falla utan ramma. Ég vil rækta þennan fjölbreytta hóp og tryggja opið og virkt samtal. 

  • Ég vil auka sýnileika og aðgang fulltrúa að LIMBÓ, sem ætlað er að vera vettvangur þar sem fulltrúar safnsins geta brugðist við líðandi stundu. 
  • Ég vil fjölga fulltrúa hittingum. Nýlega hófum við spjall-viðburða seríu þar sem að fulltrúum gefst færi á að koma saman og segja sínar sögur af safninu sem hluti af átaki í heimildasöfnun fyrir 50 ára afmæli Nýlistasafnsin.

Sýningar

Sem listamannarekið safn getur Nýló, og á að leyfa sér, að taka stærri listrænar áhættur en aðrar liststofnanir. Ég vil skapa umhverfi í Nýló þar sem listamenn geta unnið sitt starf án málamiðlana! Þar sem að listrænum mörkum og hefðum getur verið ögrað. Ég vil skapa öruggt umhverfi fyrir tilraunastarfsemi og grósku nýrra strauma, rými sem hlúir að listamönnum og hvetur þá til að taka áhættur, þar sem hið óvænta er velkomið. 

  • Ég vil leita í auknum mæli til fulltrúa. 
  • Ég vil sækja fleiri ferska vinda utan landsteinanna.
  • Ég vil leiða saman óvæntar raddir, lyfta upp þeim sem ekki hafa notið sviðsljóssins lengi eða nokkurtíman.

Safneign og Arkíf

Safneign Nýló er sjálfsævisaga samtíma myndlistar Íslands og er sem slík einstök heimild um íslenska myndlist. Hún er líkt og safnið sjálft hamskiptingur sem samsvarar þörf hvers tíma. Sjálfskoðun er mikilvægur hluti af þessu ferli. Sinnir Safneignin ennþá hlutverki sínu? Hvernig hefur það breyst og hvert er það nú? 

  • Ég vil finna fersk sjónarmið innan safneingarinnar með því að bjóða ólíkum sýningarstjórum, listamönnum, fulltrúum og fræðimönnum að vinna með hana. 
  • Ég vil auka aðgengi að safneigninni með reglubundnum opnum dögum.
  • Ég mun setja fullan kraft í viðræður við borg og ríki um bætt varðvörslu húsnæði fyrir safneignina, hún vex hratt úr grasi!

Fjármál

Í gegnum starfsreynslu mína hjá Nýló hef ég komið auga á hvar safninu gefast færi á að auka fjárhag sinn. 

  • Á árinu tókst okkur að að semja um aukið framlag frá ráðuneytinu. Í framhaldinu vil ég vinna að auknum fyrirsjánleika og öryggi með því að semja um lengri tíma samning.
  • Ég vil einnig halda áfram að móta og rækta samstarf við alþjóðlegar stofnanir, slíkt samstarf leyfir okkur að sækja í alþjóðlega sjóði og fjármagna stærri alþjóðlegar sýningar.
  • Ég vil efla velunnara prógram safnsins og tel það bjóða upp á færi sem þróa má frekar.

Það er af öryggi, umhyggju og ástríðu sem ég býð mig fram til Formanns!

Stjórn (4 sæti):

Anna Andrea Winther

Ég hef setið í varastjórn í eitt ár og gef nú kost á mér í stjórn safnsins. Ég hef sinnt margvíslegum verkefnum innan Nýló í gegnum þann tíma og hef notið þess vel. Ég vil halda áfram að gefa vinnu mína til safnsins og leggja mitt af mörkum til samtímalistar á Íslandi.

Anna Andrea Winther (f. 1993) býr og starfar í Reykjavík. Hún hlaut MFA gráðu í myndlist frá Glasgow School of Art árið 2022 og BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2018. Anna mun útskrifast með leyfisbréf kennara frá Háskóla Íslands í sumar. Hún hefur starfað sjálfstætt sem myndlistamaður og sinnt fjölbreyttum verkefnum á sviði myndlistar síðan hún útskrifaðist árið 2018. Hún vinnur mikið í samstarfi með öðrum listamönnum og vinnur með börnum og ungmennum samhliða listinni.

Joe Keys

Ég hef setið í stjórn Nýló síðastliðin tvö ár. Ég hef notið stjórnarsetu minnar innilega en hún hefur gefið mér tækifæri til þess að vinna að fjölmörgum sýningarverkefnum og kynnast safneigninni nánar. Ég hef ástríðu fyrir Íslenskri samtíma myndlist sem og eldri verkum og myndi glaður halda áfram sem stjórnarmeðlimur.  

Sadie Cook

Sadie Cook (f. 1997) hefur birt of sýnt á Íslandi sem og erlendis, meðal nýlegra verkefna er væntanleg sýning háns og Jo Pawlowska í Hafnarhúsinu. Ljósmyndir eftir Sadie má finna í bókum MOMA safnsins, Tate og Met. Hán hefur komið inn sem gestadómari í Yale, Harvard og NYU.

Sadie útskrifaðist frá Yale árið 2020 og fékk Fullbright styrk árið 2021 til þess að koma til Íslands. Hán hefur búið á Íslandi síðan þá og býr með Diljá, maka sínum. Sadie rekur Gallery Kannski og situr í varastjórn Nýlistasafnsins.

Hán hefur notið þess að sitja í stjórn. Hán vill gefa baka til samfélagsins og sýningarrýmisins sem Nýló er sem hán telur mjög mikilvægt. Hán hefur reynslu af uppsetningu, smíðavinnu og því að skrifa styrkumsóknir.

Þorsteinn Freyr Fjölnisson

Þorsteinn Freyr Fjölnisson (1993) er sýningarstjóri og móttökustjóri á Listasafni Reykjavíkur. Hann kláraði listfræði frá Háskóla Íslands árið 2021 og sýningarstjórnun frá Glasgow School of Art árið 2022. Hann hefur sinnt starfi móttökustjóra á Listasafni Reykjavíkur frá 2022 auk þess að taka að sér verkefni í sýningarstjórnun, meðal annars fyrir sýningu Loga Leós í D-sal í Hafnarhúsi, D-Vítamín í Hafnarhúsi, Listalestina á Hvolsvelli og er um þessar mundir að vinna með Kristínu Helgu Ríkharðsdóttur fyrir sýningu í Hafnarhúsi sem opnar árið 2026. 

Í sýningarstjórnunarnámi lagði Þorsteinn áherslu á aðgengi minnihlutahópa og jaðarsettra að Listasöfnum og hvernig væri hægt að auka aðgengi að þeim. Þetta telur hann að kallist á við hlutverk Nýlistasafnsins sem endurspeglar samtíð og stuðlar að auknu aðgengi að listum.

Varastjórn (3 sæti):

Ásgerður Arnardóttir (hún)

Ég býð mig fram í sæti varastjórnar Nýlistasafnsins. Ég er myndlistarkona og hef unnið sem kennari í myndlist, textíl, hreyfimynd og fatahönnun bæði hérlendis og erlendis. Ég hef tekið þátt í sýningum og listahátíðum á Íslandi og Los Angeles. Ég er nýflutt heim eftir að hafa lokið meistaragráðu í myndlist frá California Institute of the Arts (CalArts.) Þar sótti ég kennslustundir úr flestum deildum skólans og alls kyns listmiðlar kannaðir og ólíkum aðferðum beitt.

Ég heillast að grasrótarhreyfingum, tilraunamennsku og nýjum möguleikum á straumum myndlistarinnar og mun ég hafa það að leiðarljósi. Vera mín í skólanum og Los Angeles borg hefur veitt mér góða innsýn í margbreytilega flóru listasenunnar og hvað listheimurinn ber með sér og getur orðið. Ég tel að reynslan mín úr náminu, fjölbreyttum störfum og rannsóknum á margvíslegum listmiðlum muni nýtast vel í stjórnarsetu Nýlistasafnsins.

Deepa R. Iyengar

Ég hef setið í stjórn Nýló síðan 2023 og sækist nú eftir stöðu varamanns. Ég er nú þegar fulltrúi Nýló í stjórn Sequences 2025 og er einn sýningastjóra myndlistarsýningar íslenskra heyrnarlausra listamanna sem fer fram 2026.

Ég hef lagt mig fram um, og mun halda áfram, að tala fyrir því að listamenn úr jaðarhópum verði fyrir valinu hjá Nýló. Á sama tíma hef ég lært að meta hlutverk stjórnarinnar við að styðja tækifæri sem snúast um að dýpka skilning á safneign Nýló til að víkka sýnina á listasögu íslenskrar samtímalistar. Að samræma þessi tvö verkefni er spennandi áskorun.

Um mig: Ég er myndlistamaður búsettur á Íslandi síðan 2006, upphaflega frá Bandaríkjunum, af indverskum uppruna. Ég útskrifaðist með M.A. í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2023. Á Íslandi, auk hópsýninga á meðan meistaranáminu stóð (Verksmiðjan á Hjalteyri, Listasafn Einars Jónssonar, og Nýlistasafnið), hef ég sýnt verk á stöðum og viðburðum á borð við Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús, Kling&Bang, Gryfjan í Ásmundarsal (sem hluti listateymisins D.N.A.), Gallery Kannski, Hamraborg Festival, Vetrarhátíð í Reykjavík, og Raflost.

Elín Elísabet Einarsdóttir

Ég hef mikinn áhuga á samtali um myndlist og vil gjarnan stunda það sem partur af starfi Nýlistasafnsins. Ég hef víðtæka reynslu sem myndi nýtast þar, m.a. ca 5 ár sem stjórnarmeðlimur í listakollektívunni/kórnum Klið. Ég er góð í samstarfi og get látið hluti gerast. Nýló er af mörgum ástæðum einn af mest spennandi stöðum landsins til að njóta myndlistar og ég býð mig fram til að leggja mitt af mörkum í þróun þess.

Ég lærði teikningu í Myndlistaskólanum í Reykjavík og myndlist í Listaháskóla Íslands. Ég starfa sjálfstætt sem teiknari meðfram myndlistinni og stunda nám í Ritlist við HÍ. Ég bý í Reykjavík með annan fótinn á Borgarfirði eystri.

Sigríður Regína Sigurþórsdóttir

Ég býð mig fram til áframhaldandi setu í varastjórn Nýlistasafnsins. Ég hef tekið þátt í starfi safnsins í um fimm ár, fyrst við aðstoð í safneigninni, síðan sem safneignarfulltrúi frá 2022-2024 og loks í varastjórn. Ég er sérfræðingur í varðveislu nýmiðla og er nú í doktorsnámi í listfræði við HÍ. Mér er annt um safneign Nýló og þátttaka í mótun listrænnar stefnu og öflugu sýningarstarfi hefur verið mér gefandi. Ég legg hart að mér fyrir safnið, þakka fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt hingað til og vonast til að fá að halda áfram að móta stefnu og starf safnsins.

Fráfarandi stjórn
Sunna Ástþórsdóttir - formaður
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir- varaformaður
Joe Keys - gjaldkeri
Deepa Iyengar - ritari
Lukas Bury - meðstjórnandi

Fráfarandi varastjórn
Anna Andrea Winther
Sadie Cook
Sigríður Regína Sigurþórsdóttir

Skv. 6. gr. í skipulagsskrá ræður stjórn Nýlistasafnsins einstakling sem er ábyrgur fyrir starfsemi safnsins í fullt starf eða hlutastarf, svo og annað starfsfólk. Kjörin stjórn mun því huga að vali og ráðningu nýs safnstjóra í kjölfar ársfundar.

Allir fulltrúar hjartanlega velkomnir!

Mynd með frétt frá sýningu Claudiu Hausfeld ANTECHAMBER. Ljósmynd eftir Sister Lumière.