03.03.2022

Fréttir

Auglýst er eftir umsóknum um vinnustofudvöl hjá Artistes en résidence í Frakklandi. Listamenn af öllum þjóðernum með búsetu á Íslandi geta sótt um.

Umsóknarfrestur:

10.04.2022 kl. 23:59 að frönskum tíma.

Sótt er um í gegnum heimasíðu Artistes en résidence, hér.

Vinnustofan er skipti-prógram og samstarfsverkefni Nýlistasafnsins, Artistes en résidence í Clermont Ferrand, Franska sendiráðsins á Íslandi, Alliance Francaise og Sambands Íslenskra myndlistarmanna. Ár hvert fer einn listamaður frá Íslandi til Frakklands, og ár hvert tökum við á móti listamanni frá Frakklandi hingað til Íslands. Listamenn af öllum þjóðernum með aðsetur á Íslandi geta sótt um að vinnustofudvöl í Frakklandi.

Um Artistes en Résidence

 Artistes en résidence (A·R) var stofnað árið 2011 í Clermont-Ferrand og styður samtímalist með því að skipuleggja vinnustofudvöl fyrir listamenn og stuðla að rannsóknum á sviði samtímamyndlistar. A·R styður við hreyfingu og útbreiðslu samtímalistar, hugmynda og sköpunar, og uppbyggingu innlendra og alþjóðlegra samstarfsaðila.

Húsnæði A·R kallast La Diode, það er þverfaglegt rými sem er deilt meðal annars með Les Ateliers, félagi sem heldur utan um 17 vinnustofur fyrir listamenn.

A·R lítur á vinnustofudvölina sem tímabil sem er alfarið helgaðu rannsóknarvinnu og tilraunum án skyldu til þess að sýna fram á lokaútkomu. Markmiðið er að gefa listamönnum tíma til að sökkva sér í rannsóknarvinnu í nýju umhverfi og skapa þannig rými fyrir spurningar, tilraunir og mistök, sem er allt nauðsynlegir þættir í hinu skapandi ferli. 

A·R teymið veitir listamanni leiðsögn og aðstoð og kemur listamanni í samband við ýmist fagfólk í tengslum við rannsóknir, handverk eða annað sem listamaður gæti haft þörf fyrir í ferlinu.

Dvalartími

Áætlaður dvalartími listamanns frá Íslandi í Clermont-Ferrand er frá 15. janúar til 28. febrúar 2023.

Listamanni frá Íslandi býðst:

—Styrk að upphæð 2250 €.*

—Sérherbergi í fullbúinni þriggja herbergja íbúð, með baðherbergi og eldhúsi ásamt garði sem deilt er með öðrum íbúum.

—Stúdíó 160fm sem deilt er með allt að 3 íbúum.

—Aðgangur að tæknibúnaði (tréverkstæði, rafmagnsverkfæri, keramik ofn, MIG suðustöð, tölvuherbergi með borðtölvu og A3 prentara/skanni).

—Aðstoð frá teymi Nýló við umsóknir um ferðastyrk

—Leiðsögn og stuðning frá A·R teymi

—Listamaðurinn hefur möguleika á að skipuleggja opinbera kynningu og/eða sýningu í lok dvalarinnar. Þar sem gestavinnustofan leggur áherslu á tilraunastarfsemi og rannsóknarvinnu er opinber kynning ekki skylda. 

*Styrkurinn er reiknaður út frá gildandi taxta í hvoru landi fyrir sig. 

Umsóknin þarf að innihalda:

- Útfyllt umsóknareyðublað sem má finna á síðu artistes en residence hér.

- Stutta yfirlýsingu listamanns (e. artist statement) ferilskrá og myndir/tengla á nýleg verk (hámark 20MB). Allt í einu, samhangandi pdf skjali.

- Bréf um ásetning, hámark tvær A4 síður. Athugið: Ekki er ætlast til að listamenn sæki um með sérstöku verkefni heldur lýsi heldur þörfum og/eða áhuga á dvölinni almennt. Fram kemur að skipti-prógrammið sé rými til rannsókna og tilrauna án skyldu til framleiðslu. Í bréfinu geta listamenn lýst núverandi rannsóknum, væntingum og þörfum á slíkri dvöl. Einnig tengslum þeirra eða áhuga á svæðinu eða öðru sem listamaður vill taka fram.

Tekið er við umsóknum á frönsku, íslensku eða ensku. Bréf um ásetning þarf hins vegar að vera skrifað á ensku.

Listamenn geta sótt um í fleiri en einu opnu umsóknarferli hjá Artistes en résidence.

Umsóknarfrestur er til 10. apríl 2022, kl. 23:59 að frönskum tíma.

Umsóknum verður svarað í lok apríl 2022.

Spurningar má senda á: candidatures.reykjavik@artistesenresidence.fr

Frekari upplýsingar :

www.artistesenresidence.fr

www.nylo.is

www.sim-residency.info

www.af.is