20.05.2026
Kæru fulltrúar!
Stjórn Nýlistasafnsins boðar til ársfundar miðvikudaginn 20. maí kl. 17:00. Fundurinn fer fram í húsakynnum safnsins í Marshallhúsi, Grandagarði 20, 101 Reykjavík.
Fundardagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2025
3. Nýir fulltrúar taldir upp
4. Kynning frambjóðenda
5. Kjör stjórnar
Hlé
6. Fjárhagsáætlun og fulltrúagjöld
7. Niðurstöður kosninga
8. Önnur mál
Kjör stjórnar
Kosið verður til formans og þriggja sæta í varastjórn til eins árs.
Heiðar Kári Rannversson býður sig fram til áframhaldandi formennsku.
Fulltrúar sem hafa áhuga á að gegna stjórnarstörfum eru beðnir að tilkynna framboð til skrifstofu Nýló með því að senda póst á nylo(hjá)nylo.is eða tilkynna framboð í upphafi fundar.
Athugið að aðeins hafa þeir atkvæðisrétt sem greitt hafa ársgjöld fyrir árið 2026. Ársgjaldið er 4.300 kr. og verður sent í heimbanka innan skamms.
Önnur Mál:
1. Safneign Nýlistasafnsins – núverandi staða og framtíðarhorfur
Á undanförnum mánuðum hefur orðið ljóst að varðveislurými Nýlistasafnsins í Völvufelli í Breiðholti er ekki lengur fullnægjandi sem geymsla undir listaverk né vinnuaðstaða fyrir safneignarfulltrúa. Ástæðurnar eru fjölmargar: Það stendur til að rífa húsnæðið á næstu árum og hefur borgin því nánast hætt öllu viðhaldi á byggingunni sem nú er illa farin af skemmdum og raka. Þá hefur hiti og rafmagn verið í ólagi í lengri tíma.
Það er því tímabært að huga að flutningi á safneign á allra næstu misserum og starfsfólk og stjórn safnsins hefur hafið undirbúning á því verkefni. Í því samhengi þáði Nýlistasafnið boð um að taka þátt í Starfshópi um framtíðarfyrirkomulag varðveislurýma fyrir listasöfn í febrúar s.l. Starfshópinn skipar Heiðar Kári Rannversson, formann stjórnar Nýlistasafnsins, fulltrúar frá Listasafni Reykjavíkur, Menningar- og íþróttasviði Reykjavíkur en auk þess munu fulltrúar frá Listasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti koma að vinnunni. Ábyrgðarmaður er Arnfríður S. Valdimarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg.
Hlutverk starfshópsins er að skoða kosti þess að móta heildstæða framtíðarsýn um varðveislu rými fyrir Nýlistasafnið og Listasafn Reykjavíkur, og eftir atvikum einnig Listasafn Íslands. Áætlað er að starfshópurinn hefji störf í apríl og munu skila tillögum fyrir lok árs 2026.
Tekið skal fram að starfshópurinn skilar einungis tillögum en þær munu vera bornar undir stjórn og fulltrúa safnsins áður en frekari ákvarðanir verði teknar um framtíð safneignar Nýlistasafnsins. Frekari upplýsingar um starfshópinn má finna í Fundargerð Menningar- og íþróttaráðs þann 13.2.2026.
Á fundinum verða fulltrúar safnsins hvattir til þess koma með athugasemdir og hugmyndir varðandi safneignina – rödd ykkar er afar mikilvæg þar sem safneign Nýlistasafnsins er sameign okkar allra.
2. Kosningar og seta stjórn Nýlistasafnsins – fyrirkomulag og framkvæmd
Á síðustu ársfundum hefur verið rætt um fyrirkomulag og framkvæmd kosninga, m.a. símakosningu, og hvort breyta eigi lengd á setu formanns og stjórnar. Lagt verður til að stofna starfshóp fulltrúa sem skoðar þessi mál til hlýtar.
Allir fulltrúar Nýlistasafnsins eru velkomnir. Við hlökkum til að sjá ykkur!
Verk á mynd: Þórdís Alda Sigurðardóttir, Spor á vetrarbraut, 2007
Mynd: Sisters Lumiére