01.05.2023

Fréttir

Kæru fulltrúar,

við minnum á ársfund Nýlistasafnsins, miðvikudaginn 3. maí næstkomandi, kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Nýló í Marshallhúsinu. Fundarboð var sent út 19. apríl síðastliðinn og birt hér á síðunni.

Kosið verður um öll sæti stjórnar og varastjórnar: Formann til eins árs, fjögur sæti í aðalstjórn til tveggja ára og þrjú sæti í varastjórn til eins árs. Sjö framboð hafa borist: eitt til formanns, þrjú til stjórnar og þrjú til varastjórnar. Vakin er athygli á því að til að fullmanna stjórnina þurfa fjögur framboð að berast.

Þessi gefa kost á sér:

— Sunna Ástþórsdóttir býður sig fram til áframhaldandi formennsku

— Til stjórnar býður Guðlaug Mía Eyþórsdóttir sig fram áfram, Joe Keys og Renate Feizaka bjóða einnig fram krafta sína.

— Auður Ómarsdóttir, Lúkas Bury og Þorsteinn Eyfjörð bjóða sig fram til varastjórnar.

Hefur þú áhuga?

Fulltrúar sem hafa áhuga á að gegna stjórnarstörfum eru beðnir að tilkynna framboð til skrifstofu Nýló með því að senda póst á nylo(hjá)nylo.is eða tilkynna framboð í upphafi fundar.

Stjórn safnsins er æðsta vald í málefnum Nýló og til að gefa áhugasömum samhengi er hér reynt að gera hlutverki hennar örlítil skil. Stjórn mótar stefnu safnsins á opinberum vettvangi og helstu ákvarðanir er varða starfsemi Nýló fara í gegnum stjórnina. Til að mynda velur stjórn sýningar og tekur afstöðu til gjafa í safneign. Stjórn hittist mánaðarlega á stjórnarfundum þar sem farið er yfir helstu atriði, en hittist oftar í kringum sérstök verkefni. Framlag stjórnar er í formi sjálfboðastarfs og tekur þar með mið af tíma og orku hvers og eins en miðað er við að þau sem bjóða fram krafta sína geti tekið virkan þátt í starfseminni og þeim margvíslegu verkefnum sem henni fylgja. Stundum er stjórn kölluð til í aðkallandi verkefni, til að mynda meðan á uppsetningu stendur og því er ákjósanlegt að stjórnarmeðlimir séu búsettir á Íslandi. Að sitja í stjórn Nýló er tækifæri til þess að hafa áhrif og koma hugmyndum sínum um starf safnsins í farveg, móta landslag safneignar, taka beinan þátt í sýningarhaldi og öðrum verkefnum.

Dagskrá ársfundar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur    
3. Nýir fulltrúar taldir upp
4. Kjör stjórnar

HLÉ

5. Fjárhagsáætlun kynnt og ársgjald 2024 ákveðið
6. Niðurstöður kosninga kunngjörðar
7. Önnur mál

Fyrirkomulag kosninga:

Athugið að aðeins hafa þau atkvæðisrétt sem greitt hafa ársgjöld fyrir árið 2023. Ársgjaldið hefur verið sent fulltrúum í heimabanka þeirra og er upp á 3.900 kr.

Til að greiða atkvæði sitt hafa fulltrúar tvær leiðir:

1. Þau sem mæta á fund fylla út kosningaseðil á fundinum.
2. Þau sem eru utan höfuðborgarsvæðisins eða erlendis geta sent símanúmerið sitt fyrir kl 12:00, 2. maí á nylo(hjá)nylo.is og hringir trúnaðarmaður í þá af fundinum.

Ef til kosninga kemur munu hringingar hefjast klukkan 17.15 og geta fulltrúar þá greint frá atkvæðum sínum.

— Óháður trúnaðarmaður mun taka við og skrá innsend atkvæði.    

— Tveir talningamenn úr röðum fulltrúa verða valdir á fundinum.    

— Kosningu hljóta þeir frambjóðendur er fá flest atkvæði.    

— Verði atkvæðafjöldi tveggja eða fleiri frambjóðenda jafn, skal kosið aftur og þá aðeins á milli þeirra frambjóðenda er fá jafn mörg atkvæði.    

— Greint verður frá niðurstöðu kosninga á vefsíðu safnsins fljótlega að fundi loknum.

Núverandi stjórn:

Sunna Ástþórsdóttir, formaður
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, varaformaður
Claire Paugam, meðstjórnandi
Margrét Dúa Landmark, gjaldkeri
Þorsteinn Eyfjörð, ritari

Núverandi varastjórn:

Auður Ómarsdóttir
Lúkas Bury
Nerime El Ansari 

Allir fulltrúar Nýlistasafnsins eru velkomnir og boðið verður upp á léttar veitingar!

Við hlökkum til að sjá ykkur! 

Mynd með frétt:

Frá opnun PAPER FOR SPACES, fyrstu sýningunni á Vatnsstíg 3b, 1980. Ljósmynd: Ólafur Lárusson.