Nýlistasafnið skipuleggur fjölbreytta dagskrá í tengslum við sýningar safnsins, svo sem sýningarspjall með listamönnum og sýningarstjórum, málþing og leiðsagnir fyrir stóra og smærri hópa. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á safninu og komið er til móts við einstaklinga og hópa fólks með sérþarfir. Hægt er að bóka leiðsagnir og heimsóknir skólahópa með því að senda tövlupóst á netfangið nylo(hjá)nylo.is eða hringja í síma 551 4350.

Skólahópar
Nýlistasafnið býður upp á leiðsagnir og safnfræðslu fyrir nemendur af öllum skólastigum um yfirstandandi sýningar skólum að kostnaðarlausu, þriðjudaga–föstudaga frá 10—16.
Vinsamlegast bókið leiðsagnir með góðum fyrirvara á netfangið nylo(hjá)nylo.is

Almennir hópar / Starfsmannaferðir
Nýlistasafnið býður upp á afar vinsælar og sérsniðnar leiðsagnir fyrir stóra og smærri hópa, þar á meðal fyrirtæki, vina — og starfsmannahópa og ferðamenn. Hver leiðsögn tekur um klukkustund en semja má um styttri eða lengri heimsókn sé þess óskað. 
Verð leiðsagna ræðst af stærð hópa og tímasetningu heimsóknar, en lágmarksverð er 25.000 kr.