28.03.2024

20:00—21:00

Viðburðir

Listamannaspjall: Anna Hrund Másdóttir

Verið öll velkomin á listamannaspjall með Önnu Hrund Másdóttur, fimmtudaginn langa 28. mars næstkomandi, klukkan 20:00. Anna Hrund leiðir gesti um sýninguna dáðir, draumar og efasemdir sem opnaði fyrr í mánuðinum og segir frá aðdraganda sýningarinnar og vinnuferli. Samtalið fer fram annaðhvort á íslensku eða ensku og ræðst af þeim sem mæta. Aðgangur er ókeypis.

Anna Hrund Másdóttir lærði myndlist við Listaháskóla Íslands, Mountain School of Art og lauk MFA námi frá California Institute of the Arts vorið 2016. Anna hefur tekið virkan þátt í listalífinu hérlendis, tekið þátt í ýmsum verkefnum og sýnt víða, svo sem Listasafni Reykjavíkur, Gerðarsafni, Harbinger og Gallery Port. Auk þess að starfa sem myndlistarmaður er hún meðlimur í Kling & Bang.

Á sýningunni dáðir, draumar og efasemdir birtast dagdraumar í efni: „Rétt eins og dagdraumarnir verða að verkfæri til að komast inn í hugmyndaferli, reyni ég að sleppa tökunum í vinnuferlinu og láta ferlið ráða för. Ég gæti verið að vinna að verki, búa eitthvað til, fer að sinna öðru, gleymi mér og ferlið tekur nýja stefnu. Eitthvað verður til í ferlinu án þess að ég ætli mér það. Í ferlinu koma líka fram tengingar sem koma sjálfri mér á óvart. Ég er í miðju vinnuferli, sé allt í einu einhvern lit, og verkið fer að leiða mig áfram, minna mig á einhver móment, gullregnið í garðinum hjá ömmu og afa sem ég klifraði í. Uppáhalds tréð mitt. Allt í einu er ferlið búið að draga eitthvað fram í mér og mig langar að vinna meira í þeim anda, endurskapa tilfinningar í gegnum efni. Verkin mín eru þannig mörg hver tengd minningum, stöðum eða ástandi sem ég á með sjálfri mér. Ég reyni ekki markvisst að sækja í og endurskapa þessi móment, það gerist eins og allt í einu í ferlinu: það tekur stjórnina.“ — Anna Hrund, úr sýningardagbók.