29.02.2024

17:00—18:00

Viðburðir

Leiðsögn sýningarstjóra: Af hverju er Ísland svona fátækt?

Verið velkomin á fimmtudaginn langa í Nýlistasafninu! Odda Júlía Snorradóttir veitir leiðsögn um sýninguna Af hverju er Ísland svona fátækt? Sýningin leiðir saman nýtt, samnefnt verk eftir Sæmund Þór Helgason, ásamt verkum úr safneign Nýlistasafnsins.

Á sýningunni er fjallað um fátækt sem áhyggjuefni íslensku þjóðarinnar en einnig út frá lifaðri reynslu einstaklinga. Ásamt verki Sæmundar eru til sýnis verk úr safneign Nýlistasafnsins sem hafa verið gaumgæfilega valin út frá þeim svörum sem fengust í viðtölunum. Á sýningunni eru þau skoðuð út frá hugmyndum um auð og misskiptingu hans í samtíma samfélagi. Verkin eru til marks um að málefnið eigi sér djúpar rætur í þjóðarsálinni þrátt fyrir að ímyndarsköpun landsins kunni að gefa annað í skyn.

Spjallið hefst kl. 17 og tungumál viðburðarins mun taka mið af þeim sem mæta (íslenska/enska). Nýlistasafnið er opið til kl. 21:00 á fimmtudaginn langa.