24.06.2023

17:00—19:00

Viðburðir

Leftovers: Opening Event — Kamile Pikelyte (LT/IS) 

Verið velkomin á opnun gjörningaseríunnar Leifar, laugardaginn 24. Júní kl. 17—19 í Nýlistasafninu, Marshallhúsinu. Þá flytur Kamile Pikelyte (LT/IS) gjörninginn Passengers sem jafnframt verður sá fyrsti í röð sex gjörninga sem fara fram yfir sumartímann. Þau áþreifanlegu efni og hlutir sem falla til við gjörningana verða eftir í sýningarsalnum og þjóna sem efniviður fyrir þá listamenn sem á eftir koma. Verkin verða skrásett með ýmsum hætti: hljóðupptöku, í gegnum skapandi skrif og fangaðir á vídeó eða myndir. Loks verður efnið skrásett og varðveitt í Gjörningaarkífi Nýló, en arkífið verður aðgengilegt í sýningarsalnum yfir sumartímann. Viðburðaröðin vísar í ýmsar áttir, í félags-pólitíska menningarsköpun, varðveislu heimilda, helgisiði og leikreglur. 

Með gjörningnum Passengers mun Kamile Pikelyte færa tímann í áþreifanlegt form með því að  lífga upp fundin hræ og opna á gáttir upprisunnar. Gjörningurinn hefst kl. 17:15 á opnunardaginn, 24. júní. 

Sýningarstjóri er Liisi Kõuhkna, listamennirnir sem taka þátt eru: Kamile Pikelyte, Wiola Ujazdowska, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Kolbeinn Hugi, Unnur Andrea Einarsdóttir, Clare Aimée. 

Sýningarstjórinn bauð tveimur listamönnum að taka þátt í gjörningaseríunni. Eins og í boðhlaupi færðu þeir kylfuna áfram til næstu tveggja listamanna, sem síðan buðu þeim eftirfarandi og svo framvegis.

Gjörningadagskrá

24.06.2023 kl. 17 — Kamile Pikelyte (LT/IS) 

09.07.2023 kl. 16 — Wiola Ujazdowska (PL/IS)

15.07.2023 kl. 17 — Katrín Inga (IS)

22.07.2023 kl. 17 — Kolbeinn Hugi (IS/DE)

29.07.2023 kl. 15 — Unnur Andrea Einarsdóttir (IS) + guest FRZNTE

03.08.2023 kl. 15:30 — Clare Aimée (CA/IS)

03.08.2023 kl. 17:00 — Umræðuviðburður, Agnes Ársælsdóttir stýrir.

03.08.2023 kl. 19:00 — 21:00 Finissage

Ljósmynd: Úr gjörningaarkífi Nýlistasafnsins, úr kassa Nýlistadeildar MHÍ. 