14.03.2024

15:00—18:00

Viðburðir

Innan garðs og utan: söfnun á jaðrinum

Safnasafnið og Nýlistasafnið leiða saman hesta sína í samstarfi við Norræna húsið og blása til málþings  um söfnun á jaðrinum, umhverfi safna með sértæk markmið og söfnunargildi – hvert hlutverk þeirra sé innan vistkerfi lista og hvert þau stefna.

Erindi flytja:

Margrét M. Norðdahl, stofnandi Listvinnslunnar, í stjórn Listar án landamæra og áður í stjórn Safnasafnsins

Sigríður Regína Sigurþórsdóttir, safneignarfulltrúi Nýlistasafnsins

Elísabet Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Myndlistarmiðstöðvar og forstöðumaður Listasafns ASÍ

Oddný Eir Ævarsdóttir, heimspekingur, skáld og dagskrárgerðarkona

Pallborð:

Auður Jörundsdóttir, forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar

Helga Lára þorsteinsdóttir, safnstjóri safnkosts RÚV og einn fulltrúa Safnaráðs

Sigurjón Baldvin Hafsteinsson prófessor í safnafræðum í Háskóla Íslands

Jóhanna Ásgeirsdóttir, listrænn stjórnandi List án Landamæra

Ingibjörg Jóhannsdótttir, safnstjóri Listasafns Ísland

Stjórnendur og spyrlar eru Sunna Ástþórsdóttir (formaður stjórnar Nýlistasafnsins) og Unnar Örn Jónsson (myndlistarmaður og stjórnarmaður Safnasafnsins)

Málþingið verður þýtt og textað á ensku í rauntíma.

Aðgengi að Elissa (salur) er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.

Nýlistasafnið og Safnasafnið eiga það það sameiginlegt að hafa áunnið sér sess sem frumlegar skapandi stofnanir hvers hlutverk er að mæta vöntun í söfnun og miðlun hérlendis og líta til allra átta í leit sinni að listamönnum og verkum sem falla að söfnunar- og sýningarstefnu þeirra.

Þingið er hugsað sem sjálfstætt framhald málþings sem Safnasafnið hélt árið 2018 í Þjóðminjasafninu og bar heitið Frá jaðri til miðju. Þá var lögð áhersla á þróun og stöðu alþýðulistar hér á landi. Strax í kjölfarið var ljóst að þörf er á að halda á lofti orðræðu tengdri listsköpun jaðarhópa og þeirra listamanna sem falla utan „stóru listasögunnar“, en einnig hvort og á hvaða hátt söfnunarstefna safna hér á landi tekur til hugmynda um margbreytileika, jafnrétti og jafnræði. Með málþinginu er ætlunin að taka upp þessa þræði og leggja áherslu á söfnunarstefnu sem lýtur að verkum sem teljast til jaðarsins í samtímanum.

Ef það var þannig árið 2018 að jaðarinn var tiltölulega vel skilgreind eining, sem væri að nálgast miðjuna að einhverju leyti, þá mætti segja að í dag séu þessar hugmyndir óræðari. Það er erfiðara að koma auga á hvar miðjan hættir og hvar jaðarinn byrjar, eða þá hvort þessi hugtök eiga enn rétt á sér. Listamenn af ólíkum toga vinna nú saman ólíkt því sem áður var og í dag er rík krafa um að aðferðir söfnunar, og dagskrárgerðar, taki betur mið af þörfum ólíkra hópa. Á málþinginu verður lagt upp með að stofna til samtals sem horfir til margslungins samtíma með sérstaka áherslu á þau tækifæri og áskoranir sem lítil söfn með sértæka söfnunarstefnu glíma við og það umhverfi sem þeim er búið.

Málþingið hlaut styrk úr safnasjóði.