06.01.2024

20:00—01:30

Viðburðir

Afmælis- og nýársfögnuður Nýló!

Kæru vinir,

Nýlistasafnið fagnar enn einni ferðinni í kringum sólu með allsherjar nýársfögnuði, laugardaginn 6. janúar næstkomandi! Dagskráin verður glæsileg og þéttpökkuð, lifandi tónlist, uppákomur og listasmiðjur! Verið öll hjartanlega velkomin að fagna nýju ári með okkur! 

Húsið opnar klukkan 20:00 og aðgangseyrir er aðeins 1.500 krónur. Fordrykkur í boði fyrir fyrstu gestina og barinn verður að sjálfsögðu opinn allt kvöldið með veglegum veigum á hagstæðu verði.  

FRAM KOMA:

* Dj Kling & Bang *

* Benni Hemm Hemm *

* MSEA *

* Mr. Silla *

* Apex Anima x FRZNTE *

* Bjartar Sveiflur *

* Einar Stef Dj Set (hatari) *

Uppákomur:

* Silkiprent með Joe Keys *

* Teiknimiðlun, Freyja Eilíf *

Afmælis- og nýárspartý Nýló er jafnframt fjáröflun fyrir safnið, sem heldur úti metnaðarfullri sýningar- og viðburðardagskrá og stendur vörð um einstaka safneign og heimildarsafn. 

Hrópum húrra fyrir öllum 46 árunum sem Nýló hefur lifað fyrir listina, og dönsum fram á nótt!