02.03.2024

14:00—15:00

Viðburðir

Afhverju er Ísland svona fátækt? Leiðsögn á íslensku táknmál

Bryn Nóel Francis, táknmálsfræðingur og masters nemandi í listfræði verður með leiðsögn um sýninguna Af hverju er Ísland svona fátækt? á íslensku táknmáli laugardaginn 2. Mars kl. 14:00. Leiðsögnin er unnin í samstarfi við Oddu Júlíu Snorradóttur sýningastjóra og Nýlistasafnið. 

Af hverju er Ísland svona fátækt?”spyr listamaðurinn Sæmundur Þór Helgason í nýrri sýningu á samnefndu verki sem myndar samtal við valin verk úr safneign Nýlistasafnsins. Fagurfræði sýningarinnar er innblásin af grafísku auðkenni matvöruverslunarinnar Bónus sem upphaflega var stofnuð til að tryggja viðskiptavinum sínum lægsta mögulega matvöruverð á Íslandi.

Á sýningunni er fjallað um fátækt sem áhyggjuefni íslensku þjóðarinnar en einnig út frá lifaðri reynslu einstaklinga. Ásamt verki Sæmundar eru til sýnis verk úr safneign Nýlistasafnsins sem eru þau skoðuð út frá hugmyndum um auð og misskiptingu hans í samtíma samfélagi. Verkin eru til marks um að málefnið eigi sér djúpar rætur í þjóðarsálinni þrátt fyrir að ímyndarsköpun landsins kunni að gefa annað í skyn.

Aðgangur er ókeypis