|
KEES-ÞÓR-ÍVAR Þeir félagar eru ekki nýgræðingar á vettvangi myndlistarinnar. Þeir hófu myndlistaferil sinn snemma á áttunda áratug síðustu aldar og voru allir í hópi stofnfélaga Nýlistasafnsins. Þór og Ívar voru sambekkja í Myndlista og handíðaskólanum 1971-75. Kees sem er frá Holland, kom fyrst til Íslands árið 1976 og hefur verið í miklum tengslum við landið æ síðan og meðal annars búið hér á löngum tímabilum. Þó að myndlistarmennirnir þrír séu vissulega ólíkir í framsetningu listar sinnar, þá eru líka þættir sem sameinar þá. Allir hafa valið leið óhlutbundinnar myndlistar þar sem litir form og efni kallast á við rými. Myndir frá sýningunni: |
|
