Nýlistasafnið Í Reykjavík

Smelltu

MAGN ER GÆÐI
17.06-18.07
48 félagar Myndhöggvarafélagsins

Steingrímur Eyfjörð, sem er fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum á næsta ári og hefur átt stóran hlut í skipulagningu þessarar sýningar segir ; " Þegar við hugsum um efnið postulín, þá verðum við strax vör við þá tilfinningu að það tilheyri heimi nytja- og skrauthluta. Þeir sem nota það eru leirkerasmiðir og fyrirtæki sem sérhæfa sig í skrautmunum og búsáhöldum. Daglegt líf er stór þáttur í merkingu og hlutverki þessa efnis. Hugmyndin með að fá listamenn til að vinna með postulín, er tilraun til að gefa efninu og hlutverki þess aðra merkingu og möguleika. Efnistök og fagurfræðileg nálgun gildir einu, vegna þess að tilraunin sem slík leysir upp hlutverk efnisins og réttlætir gildi sýningarinnar. Gildið felst í magninu en ekki gæðum verkanna, en ef hægt er að tala um gæði þá er það mismunandi tilraunir með hlutverk efnisins en ekki fáguð efnisnotkun. Á einhven hátt sjáum við afrakstur á því stigi, þegar tilraun mun leiða að öðrum verkum í ófyrirséðu samhengi. Gestir sýningarinnar fá að skyggnast inn í heim þreifinga og tilrauna, áður en raunveruleg skref eru tekin með meðhöndlun þessa næstum dogmatíska efnis.

Myndir frá sýningunni:

{mosimage}

Smelltu

Smelltu


analoji fen bilgisi